Ford Bronco Sport aukabúnaður
Ford er á fullu að undirbúa úrval aukahlutapakka fyrir tilvonandi kaupendur nýja Broncosins, Ford Bronco Sport. Þeir hafa nú kynnt fimm splunkunýja útivistarpakka fyrir styttri týpuna. Ford mun afhenda bílana með þeim aukabúnaði sem viðskiptvinurinn getur pantað þegar hann festir kaup á bílnum en pakkarnir eru framleiddir af Yakima.
Vetrarpakkinn samanstendur af öflugum skíðafestingum.
Pakkarnir eru sérsniðnir fyrir hjólasport, vatnaíþróttir, vetraríþróttir, útivistarfólk og að lokum til aukinnar flutningsgetu. Þannig getur þú smellt öllu því dóti sem þú notar með þínu áhugamáli haganlega fyrir á bílinn.
Tveggja manna tjald fylgir útivistarpakkanum.
Allskyns útivistarpakkar
Hjólapakkinn samanstendur af toppgrind með neti og hjólafestingum aftan á bílinn, vatnaíþróttapakkinn er með toppgrind fyrir tvo kajaka og markísu, útilegupakkinn inniheldur tveggja manna tjald sem fest er á toppgrind og með markísu og skíðapakkinn samanstendur af öflugum skíðafestingum á þverboga. Mottur fylgja öllum pökkum.
Vatnaíþróttapakkinn. Kajak festingar og markísa.
Að lokum geta menn svo fengið rúmgott tengdamömmubox ef meira pláss vantar í ferðalagið.
Hjólafestingar aftan á og toppgrind með neti.
Þú hannar þinn eigin stíl
Ekki er komið verð á pakkana en Ford segir að þeir sem ekki séu í hjóla, útilegu, vatna eða skíðasporti þurfi ekki að örvænta því hægt verði að sérsníða búnaðinn eftir þörfum hvers og eins úr lista með yfir hundrað vörugerðum í flokki aukahluta sem hægt er að fá setta í bílinn í verksmiðju.
Gamla góða tengdamömmuboxið klikkar aldrei.
Ford hefur ekki gefið upp hvort stærri Broncoinn verði fáanlegur með svipuðum pökkum en kaupendur munu hins vegar geta valið úr úrvali aukahluta með bílunum þegar afhending hefst seinnipart árs.
Aðrar umfjallanir
Í umferðarþætti Vísis 29. janúar 1964 segir frá þessari nýjung undir fyrirsögninni „naglar í snjódekk í staðinn fyrir keðjur?”
Þegar plata Bee Gees, Saturday Night Fever, hafði selst í milljónum eintaka í Bandaríkjunum árið 1978, fengu þeir ekki platínuplötu. Þeir fengu Cadillac Fleetwood Brougham. Sá bíll virðist reyndar hafa gufað upp…
Stundum eru góðar fréttir í heiminum og í dag er ein slík á ferðinni: Búist er við að stjórn Volkswagen samþykki á miðvikudag áætlun...
Í dag eru liðin 23 ár frá brunanum í Mont Blanc göngunum. 39 manns létust þegar kviknaði í matvælaflutningabíl en eldurinn breiddist út til um 20 annarra vörubíla og 10 fólksbíla. Öryggisatriði í göngum voru víða endurskoðuð eftir þessi ósköp.