Bílasalan fer hægt af stað
- Um 20% samdráttur miðað við sama tíma í fyrra
- BL söluhæst bílaumboðanna
Þegar sölutölur nýrra bíla eru skoðaðar núna að loknum fyrsta mánuði ársins má sjá að sala á nýjum bílum fer hægt af stað, miðað við sama tímabil í fyrra, árið 2020.
BL er efst á lista yfir umboðin með 143 bíla selda til einstaklinga og fyrirtækja. Hekla er í öðru sæti með 119 selda bíla, Toyota í því þriðja með 109 bíla, Askja í fjórða sæti með 113 bíla og Brimborg með 99 bíla.
Önnur umboð fylgja þar á eftir með heldur færri bíla hvert.
Land Rover Defender hástökkvari BL í janúar
BL var að senda frá sér fréttatilkynningu um söluna núna í janúar:
Taflan sýnir nýskráningar fólks- og sendibíla BL í janúar 2021.
Af einstökum merkjum BL var Land Rover hins vegar hástökkvari mánaðarins með 80% fleiri nýskráningar heldur en á sama tíma fyrir ári.
Þar ráða úrslitum góðar viðtökur kaupenda á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði við nýjum Defender og komst bíllinn m.a. á topp tíu lista mánaðarins yfir söluhæstu gerðirnar á markaðnum í janúar.
Leaf og Defender á fyrirtækjamarkaði
Að liðnum fyrsta mánuði ársins er BL sem stendur helsta bílaumboðið á samanlögðum einstaklings- og fyrirtækjamarkaði, með 22,6% hlutdeild, en einnig á markaði bílaleiga þar sem hlutdeildin var 32,4% í janúar.
Á hinn bóginn voru óvenjufáir bílar nýskráðir bílaleigunum, eða einungis 34 samanborið við 197 í janúar 2020, sem gerir tæplega 83% samdrátt milli ára.
Af einstökum tegundum var Hyundai i20 með flestar nýskráningar inn á bílaleigumarkaðinn. Á fyrirtækjamarkaði fólksbíla einum og sér var hlutdeild BL 26,8% og þar komust bæði Nissan Leaf og Defender á topp tíu lista mánaðarins.
Sendibílar
Í janúar voru 57 litlir og meðalstórir sendibílar nýskráðir til einyrkja og fyrirtækja og voru 23 frá BL eða 26,7%, aðallega Renault og Nissan. Í flokki meðalstórra sendibíla á markaðnum var Renault Trafic söluhæstur. Nýskráningar lítilla og meðalstórra sendibíla voru tæpum 16% færri í nýliðnum mánuði en á sama tíma 2020.
(fréttatilkynning)
Aðrar umfjallanir
Ekkert, er líklegasta svarið og líklega færðu ekki þessa spurningu yfir höfuð. En þeir sem hafa spilað tölvuleiki í PC tölvum fá oft hliðstæða spurningu um skjákortið í tölvunni þeirra...
Allir fyrstu rafbílarnir sem undirritaður sá t.d. í sjónvarpi eða settist inn í voru litlir bílar. Mjög litlir bílar. Þeir sem hönnuðu þá virtust vera fastir í þeirri hugmynd að lítill bíll...
BYD Atto 3 fékk fimm stjörnu Euro NCAP öryggiseinkunn en Citroen C5 X sem smíðaður er í Kína og Renault Mobilize Limo fengu...
Volkswagen kynnti í gær áætlanir sínar um að breyta samstæðunni í hugbúnaðardrifið ferðalausna fyrirtæki með áherslu á öflugu vörumerkin sín...