Lexus ætlar að endurskoða framboð vörumerkisins, ný gerð kemur á árinu 2021
TOKYO - Lexus mun afhjúpa endurskoðaða „sýn á vörumerkið“ í vor og undirbýr nýja gerð sem kemur síðar á árinu og er ætlað að kynna „næstu kynslóð“ vörumerkisins.
Þetta úrvalsmerki Toyota bauð upp á lítið af upplýsingum um komandi breytingar.
Lexus sendi frá sér kynningarmynd af hugmyndabíl sem verður frumsýndur í vor og er hér efst í fréttinni. Bíllinn er með breiða og lága stöðu og gefur í skyn eitthvað sportlegt. Hér er hins vegar búið að „lýsa“ myndina aðeins til að gefa betur í ljós hvers er að vænta.
Lexus var búið að senda frá sér kynningarmynd af nýjum bíl í desember, sem sýndi rétt aðeins aðalatriði í dökkum skugga.
En þegar myndvinnslumenn á bílavefsíðum voru búnir að fara höndum um myndina kom aðeins meira í ljós af smáatriðum.
„Í vor munum við afhjúpa nýja vörumerkjasýn okkar ásamt nýjum hugmyndabíl, sem sýnir fyrirætlanir okkar til framtíðar og markar upphaf næstu kynslóðar Lexus,“ sagði Lexus í yfirlýsingu. „Ennfremur munum við setja fyrstu gerðina af stað undir nýju sýninni okkar á þessu ári og við munum halda áfram að kynna nýjar gerðir á næsta ári og síðan í framhaldinu".
Lexus sendi frá sér fréttirnar þegar fyrirtækið tilkynnti að sala á heimsvísu hafi lækkað um 6 prósent í 718.715 bíla árið 2020 þar sem heimsfaraldur COVID-19 hamlaði eftirspurn um allan heim.
Afgreiðslum fækkaði um 16 prósent á fyrri hluta ársins þegar heimsfaraldurinn náði tökum en hækkaði um 2 prósent á þeim síðari.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Autocar fræðir okkur á því að Mercedes-Benz mun ekki smíða minni rafdrifna hlaðbaka, heldur leggja áherslu á sportjeppa...
Það vita flestir hver Jürgen Klopp er. Meira að segja mestu antisportistar vita að þessi maður tengist knattspyrnu. Hann hefur síðustu tíu árin ekið um á Opel og hafa einhverjir furðað sig á manninum á stationbílnum.
Þann 30. Apríl fagnaði Land Rover 72 ára afmæli þegar Land Rover frumsýndi þrjá forframleiðslubíla, kölluð Series I...
Auðvitað var maður farinn að sakna hans! Crazy Rocketman er eðli máls samkvæmt alltaf að gera eitthvað klikkað og það er svo gaman að fylgjast með honum. Úr fjarlægð. Hann er oftar en ekki á ferðinni, fleygiferð, að prófa uppfinningar sínar og nú er það „Steampunk“ þotuhjólið.