Mercedes Benz leggur áherslu á stærri rafbíla
Autocar fræðir okkur á því að Mercedes-Benz mun ekki smíða minni rafdrifna hlaðbaka, heldur leggja áherslu á sportjeppa eða crossover með rafmagni að sögn Markus Schäfer yfirmanns rannsókna og þróunar hjá fyrirtækinu. Næsti rafbíllinn, EQA, hefur næstum lokið prófunum og er sportjeppi af minni gerðinni. Schäfer sagði:
„Við verðum að fylgjast með eftirspurn viðskiptavina og um þessar mundir eru sportjeppar og crossover algjört uppáhald. Þetta eru aðaláherslur okkar“.
Aðrar umfjallanir
Hvern hefði órað fyrir því, þegar fyrsta The Fast and the Furious myndin var sýnd árið 2001, að DeLorean yrði í slíkri mynd? Sennilega hefðu ekki margir látið sér detta annað eins í hug! Það er samt staðreynd að í tíundu F&F myndinni, sem verið er að taka upp núna í Los Angeles, er einmitt splunkunýr DeLorean.
Nýi Smart #1 er byggður á alveg nýjum rafmagnsarkitektúr frá Geely, sem kallast SEA. Þetta mun styðja við væntanlegt nýtt úrval bíla Smart, en #1 setur einnig sniðmátið fyrir...
Næstu sex mánuðina ætlum við að lýsa upplifun okkar á því að aka um á rafmagnsbíl. Markmiðið er að gefa lesendum okkar innsýn í daglegt líf rafbílanotenda...
Rafmögnuð sumarhátíð Heklu verður haldin laugardaginn 12. júní með pompi og prakt. Áhersla verður lögð á rafmagnsbíla en Hekla er í öðru sæti í sölu rafmagnsbíla...