Nýtt útlit á 2021 Volkswagen Polo sést í fyrsta skipti
- Volkswagen Polo mun brátt fá uppfærslu sem byggir að hluta á áttundu kynslóð Golf
Auto Express var að sýna okkur andlitslyftingu á útliti sjöttu kynslóðar Volkswagen Polo. Bíllinn verður afhjúpaður undir lok þessa árs með endurhönnuðu ytra byrði, til að taka á keppinautum eins og nýjasta Renault Clio og Hyundai i20.
Með myndunum sem vefurinn birti af þessari frumgerð sjáum við að hönnuðir Volkswagen hafa notað nýja Mk8 Golf sem upphafsstað fyrir útlitsbreytingar á Polo.
Nýi framendinn á bílnum sækir innblástur í stærri systkini sín, með nýjum aðalljósum mótuð svipað og á nýjasta Golf, uppfærðri grillhönnun og nýjan neðri stuðara með stórum loftinntökum.
Það ætti að vera svipuð saga með vélasvið Polo, þar sem bíllinn notar nú þegar nýjustu aflrásir Volkswagen.
Nema Volkswagen ákveði að einingin sé ekki lengur arðbær, mun byrjunargerðin samt vera með 1,0 lítra þriggja strokka bensínvél með 79 hestöflum. Miðlungsgerðir munu nota túrbóútgáfu af sömu vél og bjóða annaðhvort 94 hestöfl eða 113 hestöfl - sem báðar verða fáanleg með sex gíra beinskiptongu eða sjö gíra sjálfskiptingu. Andlitslyftingin er líkleg til að kynna 48 volta mild blendingstækni einnig fyrir Polo og fá 1.0 lítra eTSI vélina lánaða frá Golf.
(frétt á Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Það þarf ekki endilega að vera flókið til að virka! Hér er þróun Toyota Land Cruiser frá 1951 til dagsins í dag sýnd á snjallan máta með myndum og það á einni mínútu.
Hinn 86 ára gamli Jose Mujica var forseti Úrúgvæ frá 2010-2015. Munið þið eftir honum? Hann var af mörgum kallaður „nægjusamasti þjóðarleiðtogi í heimi“ en af öðrum „fátækasti forsetinn“. Forsetabíllinn var VW bjalla frá 1987. Forsetinn „þurfti“ ekki annan bíl.
Alltaf er hægt að læra eitthvað nýtt. Hefur þú heyrt um bíllyklatrixið? Hvernig láta má ferskt loft leika um bílinn án þess að starta eða svo mikið sem svissa á?