Toyota byrjar árið með glæsilegri sýningu: Fjórir fjórhjóladrifnir sýndir á fjórum stöðum
Toyota byrjar nýtt ár með krafti og býður til glæsilegrar sýningar laugardaginn 9. janúar hjá viðurkenndum söluaðilum í Kauptúni, á Selfossi, Akureyri og í Reykjanesbæ.
Fjórir fjórhjóladrifnir bílar verða í aðalhlutverki, nýr Highlander Hybrid sem nú er frumsýndur á Íslandi, 70 ára afmælisútgáfa Land Cruiser með aflmeiri vél, nýr Hilux með stærri vél og aukinni dráttargetu og RAV4 Hybrid og Plug in Hybrid sem notið hafa fádæma vinsælda undanfarin misseri.
- Nýr Toyota Highlander Hybrid kemur nú á markað í fyrsta sinn í V-Evrópu og þar með á Íslandi. Góð reynsla er komin af Highlander víða um heim frá því hann kom fyrst á markað árið 2000. Highlander er stór sportjeppi með góða aksturseiginleika og mikið innanrými, 2 tonna dráttargetu og veghæð sem sæmir öflugum sportjeppa eða 20,3 cm. Hröðun frá 0-100 km/klst. er 8,3 sek.
-Toyota RAV4 Hybrid og Plug in Hybrid hafa heldur betur slegið í gegn á síðustu mánuðum enda hentar þessi sparneytni bíll einstaklega vel á Íslandi hvort sem er í þéttbýli eða dreifðari byggðum. Betri ferðafélaga er vart hægt hægt að hugsa sér.
Aðrar umfjallanir
Samkvæmt frétt frá Bloomberg lítur út fyrir að Toyota sé stærsti bílaframleiðandi heims þriðja árið í röð, eftir að hafa selt meira en 1 milljón bíla umfram...
Lykilgerð í þessum stærðarflokki mun verða frumsýnd í ársbyrjun 2022; ekkert vitað um fullan rafmagnsvalkost...
Margir hér á landi muna eflaust eftir Hyundai H-1 eða Starex, sem var vinsæll bíll fyrir stórar fjölskyldur, bíll með aldrifi og ágætri veghæð sem...
Við höfum áður fjallað um Grenadier-jeppann, sem Sir Ian Ratcliffe, sem við þekkjum betur vegna þess að hann á nokkrar laxveiðijarðir á norðausturlandi...