Kia kynnir nýjan og háþróaðan undirvagn fyrir næstu kynslóðir rafbíla

Kia í samvinnu við Hyundai Motor Group kynnti í dag nýjan og háþróaðan E-GMP undirvagn (Electric-Global Modular Platform) sem er sérstaklega hannaður fyrir rafbíla.

image

Þessi nýi undirvagn verður notaður í næstu kynslóðir rafbíla hjá samsteypunni. Hann mun skila rafbílunum yfir 500 km drægni í fullri hleðslu samkvæmt WLTP staðli og bílarnir munu geta náð 80% hleðslu á innan við 18 mínútum með háhraða hleðslustöð.

image
image
image

Nýi undirvagninn mun auk þess skila rafbílunum betri aksturseiginleikum, meira öryggi og meira innanrými. Kia Motors, sem er innan Hyundai Motor Group samsteypunnar, ætlar sér að vera leiðandi í þróun rafbíla með hinum nýja E-GMP undirvagni. Kia, Hyundai og Genesis tengjast í gegnum þessa öflugu suður-kóresku samstæðu.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is