Rafmagnaðir jeppar fá góðar viðtökur
- Fyrsta pöntun á jeppum hjá Ísband í forsölu seldist fljótt
Það er greinilegt að áhugi bílakaupenda á bílum sem nota rafmagn að hluta eða öllu leyti er mikill þessa dagana. Í nýlegum tölum yfir bílainnflutning á árinu kom fram að um helmingur nýrra bíla er þessum kostum búinn.
Þetta á líka við um jeppamarkaðinn, því hjá Ísband í Mosfellsbæ, umboðsaðila Jeep á Íslandi, eru menn að selja Jeep Renegade og Jeep Compass í tengitvinnútgáfum, og eru ánægðir með söluna.
Hér bíður Jeep Compass 4xe nýs eiganda í sýningarsal Ísband í Mosfellsbæ.
Fyrsta pöntun seldist upp
Við höfðum samband við Sigurð Kr. Björnsson markaðsstjóra Ísband, og spurðum hann út í söluna.
Þessir jeppar fengið mjög góðar viðtökur hjá viðskiptavinum, enda er hér um að ræða Plug-in-Hybrid jeppa með alvöru fjórhjóladrifi, lágu drifi, mjög vel útbúnir og á mjög góðu verði“, segir Sigurður kr. Björnsson, markaðstjóri Ísband.
Óhefðbundin frumsýning
„En í stað hefðbundinnar frumsýningar, í ljósi samkomutakmarkana, lengdum við opnunartíma í nóvember. Við höfum opið til kl. 20 á miðvikdögum og fimmtudögum. Bættum einnig við helgaropnunina, erum með opið á laugardögum frá 12-16, og bættum einnig við sunnudögum frá kl. 12-16.
Vel búnir bílar
„Við höfum fengið mjög góðar viðtökur hjá viðskiptavinum, enda er hér um að ræða Plug-in-Hybrid jeppa með alvöru fjórhjóladrifi, lágu drifi, mjög vel útbúnir og á mjög góðu verði“, segir Sigurður. „Þetta eru einu rafknúnu Plug-In Hybrid jepparnir í sínum stærðarflokki með lágt drif“.
Þess má geta að bílarnir voru auglýstir á sérstöku „forsöluverði“ og það hefur komið fram hjá ísband að þessi verð muni standa óbreytt til áramóta óháð gengisbreytingum.
Jeep® Compass kemur í þremur útgáfum. Limited svartur kostar 5.999.000 kr. og aðrir litir kosta 163.000 kr. nema perluhvítur 233.000 kr. Jeep® Compass Trailhawk kostar 6.490.000 og “S” kostar 6.599.000 kr.. Allir eru með svörtu þaki.
Það sem greinir þessa nýju „rafmögnuðu“ gerð Compass að frá eldri gerðunum er 4Xe merkið á afturhorninu.
Bílablogg mun taka þessa bíla í reynsluakstur fljótlega og þá verður hægt að lesa nánar um þá hér á síðunni.
Aðrar umfjallanir
Fæst okkar geta nefnt fyrsta bílinn sem fyrir augu okkar bar. Það var hins vegar eflaust öllu minna mál fyrir fólk sem fætt var í kringum aldamótin 1900.
Hafið þið tekið eftir að oftar en ekki vantar bæði dráttarkúlu og toppgrind á Rolls-Royce bifreiðar? Gunnar Jónsson, Helga Braga og Þorsteinn Guðmundsson fóru á kostum í þessu atriði í Fóstbræðraþætti fyrir margt löngu síðan.
Skipuleggjendur bílasýningarinnar í Genf hafa afturkallað umsókn sína um fjárhagslegan stuðning frá Genfar-kantónunni í kjölfar...
Er verið að grilla í fólki? Það er nú það! Grill eru oftar en ekki það fyrsta sem fólk tekur eftir á bílum, rétt eins og munnurinn á mannfólkinu. Grillin eru og verða áberandi næstu misserin.