Skipuleggjendur bílasýningarinnar í Genf „mjög óvissir“ um sýninguna 2021
Skipuleggjendur bílasýningarinnar í Genf hafa afturkallað umsókn sína um fjárhagslegan stuðning frá Genfar-kantónunni í kjölfar niðurfellingar viðburðarins í ár.
Ríkisráðið í Genf hafði boðið 16,8 milljóna franka láni (328 milljónir ISK), en stofnunin að baki Alþjóða bílasýningarinnar í Genf (FGIMS) hefur talið skilmála lánsins „misvísandi“ og hefur fallið frá láninu.
Bílasýningin í Genf árið 2020 var meðal fyrstu áberandi atburða á sviði bíla í Evrópu sem var aflýst vegna kórónaveirufaraldursins, þar sem sveitarstjórnir bönnuðu opinberar samkomur aðeins fjórum dögum áður en áætlað var að sýningin mynd opna í Palexpo 5. mars .
Óvíst hvort sýning verður 2021
Yfirlýsingin vekur einnig vafa um hvort atburðurinn muni eiga sér stað árið 2021: „Enn fremur er mjög óvíst um þessar mundir að skipulagning atburðarins árið 2021 muni halda áfram“.
(byggt á frétt á Autocar)
Aðrar umfjallanir
Polestar er staðráðinn í að bæta við framleiðslu í Evrópu, en það munu líða að minnsta kosti fimm ár þar til það gerist...
Til eru ótal síður á alnetinu þar sem fullyrt er að fáránlegar umferðarreglur séu hér og þar í heiminum. Einkum og sér í lagi í hinum og þessum fylkjum...
PARIS - Citroen sýndi í dag, 15. júní, myndir af nýjum C4, sem kemur í rafmagnsútgáfu og mun koma í stað C4 Cactus...
Næsti rafbíll Ford mun nota grunn frá VW Group og vera í stærð fyrir neðan Mustang Mach-e í Ford-línunni..,