Mazda MX-30, fyrsti 100% rafbíllinn frá Mazda með 5 stjörnur.
Nýi rafbíllinn Mazda MX-30, fær 5 stjörnur í nýjasta árekstrarprófi Euro NCAP.
Euro NCAP öryggisstofnunin kynnti nýverið til sögunnar nýjar prófunaraðferðir þar sem auknar kröfur eru gerðar til öryggisbúnaðar og aðstoðarkerfa bíla. Mazda MX-30 rafbíllinn undirgekkst nýjasta prófið og hlaut frábæra einkunn eða 91 stig fyrir öryggi bílstjóra og farþega þegar kemur að öryggi í árekstri að framan og á hlið. Þetta er besti árangur hingað til í þessum flokki, eftir að nýir prófunarstaðlar voru kynntir.
Á sama tíma hlaut Mazda MX-30, 87 stig fyrir getu sína til að vernda börn í bílnum.
Umfang öryggiskerfa og virkni þeirra skipta ótrúlega miklu máli þegar bílar eru öryggisprófaðir og hvort bíll geti náð 5 stjörnum. Mazda MX-30 er ótrúlega vel búinn fjölda virkra öryggiskerfa til að koma í veg fyrir árekstur við aðra vegfarendur - hvort sem það eru bílar í umferðinni eða gangandi eða hjólandi vegfarendur. Kerfið er útbúið skynjurum sem aðstoða ökumann við að greina aðkallandi hættur í umhverfinu og láta ökumann vita um leið.
Daglegur akstur í Mazda MX-30 verður enn auðveldari með framrúðuskjánum og bakkmyndavélinni.
Einnig má nefna Smart City Brake stuðning sem er stöðugt að fylgjast með hraða bílsins og fjarlægð í næstu hindrun og bregst við óvæntum hindrunum. Mazda MX-30 rafbíll er búinn 10 loftpúðum, sem er nýtt hjá Mazda, öryggispúðar eru t.a.m staðsettir milli ökumanns og farþega að framan auk hliðarpúða í aftursæti.
Nýr Mazda MX-30 er 100% hreinn rafbíll á einstaklega hagstæðu verði sem gerir fleirum kleift að njóta þeirra þæginda, sparnaðar og jákvæðra umhverfisáhrifa sem rafbílar veita í bæjarsnattinu.
Glænýr Mazda MX-30 er búinn ríkulegum staðalbúnaði t.a.m bakkmyndavél, forhitun sem tryggir alltaf heitan bíl, vegaleiðsögn, hárri sætisstöðu og japönskum Mazda gæðum með víðtækri ábyrgð og innbyggðri varmadælu á einstöku verði frá 4.090.000 kr.
Lesa má umfjöllun Bílabloggs um bílinn HÉR.
Aðrar umfjallanir
Volkswagen hefur verið að hasla sér völl á sviði rafbíla að undanförnu með aukinni sókn – og þar er ID-fjölskylda rafbíla...
Enn heillast undirrituð af þessu magnaða skipulagi og auðvitað er gaman að sjá alla vörubílana „dömpa“. Þetta er svei mér ef ekki markvissara skipulag en maður sér á góðum degi í íslensku unglingavinnunni.
Hefðbundnir minni fólksbílar hafa tapað markaðshlutdeild yfir til sportjeppa og crossover á undanförnum árum og nú hefur annar hluti bætt sig í sölu: sendibílar sem eru búnir sem fólksbíla...
Hafir þú ekið um stórmerkilegar götur San Francisco er líklegt að þú getir rifjað upp hljóðið þegar ekið er yfir spor hinna margfrægu kapalvagna borgarinnar. Þykja beygjurnar og brekkurnar mun sérstæðari en „íslenskar“ hraðahindranir og öll okkar hringtorg til samans.