Virgin Hyperloop ekur fyrsta fólkinu í ofur-hraða tilraun
Virgin Hyperloop í eigu Richard Branson hefur lokið fyrstu tilraunum í heiminum með farþegaflutninga á ofurhraða í klefa sem svífur í lausu lofti. Þetta var lykil öryggispróf vegna tækni sem fyrirtækið vonast til að breyti fólks- og vöruflutningum framtíðarinnar.
Hyperloop sem er í Los Angeles sér fyrir sér framtíð þar sem svífandi hylki eða klefar fullir af farþegum og vörum þeytast áfram í vakúmgöngum á 600 m/klst (966 km/klst) eða hraðar.
Í hyperloop vegakerfi, sem notar segul lyftingu eða svif sem gefur nánast hljóðlaust ferðalag, myndi ferðin á milli New York og Washington taka aðeins 30 mínútur. Ferðalagið tæki helmingi minni tíma en með farþegaþotu og fjórðung af þeim tíma sem það tæki með háhraðalest.
Fyrirtækið hefur áður keyrt yfir 400 prófanir án fólks á svæðinu í Nevada.
Fyrirtækið er að vinna að því að fá öryggisvottun fyrir 2025 og hefja starfsemi fyrir 2030 að þeirra sögn.
(Byggt á grein Autoblog). Mynd: CNN.
Aðrar umfjallanir
Nick Gibbs hjá Automotive News Europe fræðir okkur á því í frétt að hinn upprunalegi Land Rover Defender muni snúa aftur á næsta ári sem öflugur...
Gamlir og glæsilegir bílar vekja hvarvetna eftirtekt þegar þeir aka um götur og torg borgarinnar, einkum vegna þess hversu frábrugðnir þeir...
Þetta er nýr hugmyndabíll sem kallaður er Vision Starburst. Nafngiftin á svo sem ekkert skylt við ávaxta karamellurnar ef þú ert eitthvað að pæla í því. Heldur er nafnið...
VW var að senda frá sér nýja mynd til að kveikja áhugann á hinum nýja Golf R sem mun verða frumsýndur þann 4. nóvember næstkomandi, ef allt...