Honda e kominn í sölu hér á landi
Við höfum fjallað um þennan alveg nýja Honda e hér á Bílablogg.
"Við erum komnir með bíl í sal og í reynsluakstur. Við fengum bara litla sendingu núna og þeir bílar allir seldir en fáum lausa bíla eftir mánuð. Fyrstu bílar verða afhentir í þessari viku" sagði Baldur.
Við hjá Bílabloggi erum þegar búin að panta reynsluakstur á bílnum og bíðum við spenntir eftir að röðin komi að okkur en hún er nokkuð löng.
Bíllinn er boðinn í tveimur útgáfum - Basic og Advanced. Verðið er frá 4.390.000 kr. Tveir mótorar eru í boði, 136 og 154 hestöfl, drægnin er uppgefin um 220 km. skv. WLTP prófunarkerfinu. Heildarafl rafhlöðu er um 35 kWh og eyðsla á hverja 100 km. er um 18-20 kWh.
Honda e er með afturdrifi líkt og hinn nýi ID3 frá VW. Togið í þessum litla bíl er hvorki meira né minna en 315 Nm.
Honda hjá Öskju hefur flutt sig yfir í nýjan og rúmgóðan sýningarsal að Krókhálsi 13.
Aðrar umfjallanir
Nítján ára piltur í Flórída mun hafa kortlagt flugferðir einkaþotu Elon Musk, stofnanda og forstjóra Tesla. Upplýsingarnar, sem eru í sjálfu sér opinberar, hefur pilturinn m.a. deilt á Twitter og nú er svo komið að Musk hefur að sögn piltsins boðið honum fúlgur fjár fyrir að hætta þessu.
Bílaflutningaskipið og óheillakrákan með því lukkulega nafni Felicity Ace er nú á hafsbotni ásamt 4000 nýjum bílum. Það er á um 3000 metra dýpi 220 sjómílur frá ströndum Azoreyja eftir tveggja vikna vandræði á hafi úti
Áttatíu ár eru ansi stór áfangi hjá öllum og þegar Jeep vörumerkið náði þessum stóra 80 ára áfanga árið 2021 var augljóst að sérstök útgáfa nú eða tvær væri...
Mercedes-Benz ætlar að afhjúpa nýtt flaggskip sem hún gerir ráð fyrir að muni leiða rafhlöðusviðið á markaðnum og fylgja eftir því loforði...