Nú verður RAV4 stungið í samband
Laugardaginn 19. september bjóða viðurkenndir söluaðilar Toyota til frumsýningar á RAV4 Plug-in Hybrid. Opið er hjá Toyota í Kauptúni og á Akureyri frá kl. 10 – 16 en frá kl. 12 – 16 á Selfossi og í Reykjanesbæ.
Með þessari nýjustu útfærslu er hægt að stinga RAV4 í samband og útkoman er bíll sem sameinar kosti rafmagnsbíls og sparneytins Hybridbíls.
RAV4 verður áfram í boði í Hybridútfærslu og sem hefðbundinn bensínbíll.
Öflugur búnaður RAV4 Plug-in Hybrid tryggir að hann er hreinræktaður rafmagnsbíll með allt að 75 km drægi og 135 km/klst. hámarkshraða á rafmagni eingöngu án þess að bensínvélin komi nokkuð við sögu.
Sem rafmagnsbíll dugar hann því vel í allri venjulegri notkun innanbæjar. Hleðslutími með heimahleðslustöð er aðeins 2,5 klukkustundir.
Velja má um akstur á rafmagni eingöngu eða að nota sameiginlegt afl frá bensínvél og rafhleðslu. Þannig verður RAV4 Plug-in Hybrid að sannkölluðum sportjeppa því samanlagt afl frá bensínvél og rafmagni er 306 hestöfl og bíllinn er aðeins 6 sekúndur að ná 100 km hraða.
RAV4 Plug-in Hybrid fæst í þremur útfærslum, GX, Style og Style+ og kostar frá 8.550.000 kr.
Öllum Toyotabílum fylgir 7 ára ábyrgð og tveggja ára þjónustupakki.
Aðrar umfjallanir
SHANGHAI - Kínverski rafbílaframleiðandinn Nio kynnti á laugardag sinn fyrsta fólksbíl og horfir til aukinnar hlutdeildar í stærsta bílamarkaði heims...
Jú, það er rétt. Þetta er hann. Smart #1 meira að segja. Það er nafnið á nýjum rafjeppa Smart sem ætlað er að koma fyrirtækinu aftur á kortið.
Það var í þessum gula Fiat 128 sem ekið var með João nýfæddan heim af fæðingardeildinni. Sá guli tengist ánægjulegum minningum úr æsku Joãos þar sem hann „ók“ bílnum í kyrrstöðukappakstri í bílskúrnum.
H5N1? Nei, það er fuglaflensa. Ó! Afsakið. Ætli það sé þá ekki bZ4X? Jú, en þá er stóra spurningin hvort það sé Toyota bZ4X XLE FWD eða bZ4X AWD XMODE. Settist einhver á takkabrettið eða hvaða flækja er þetta eiginlega? Er búið að útrýma nöfnum eins og Fiat Panda?