GM-Wuling í Kína selur 15.000 rafknúna smábíla á 20 dögum
Hongguang Mini EV – byrjunarverðið í Kína er 28.800 yuan (ISK 574,000). Mynd: vefsíða SAIC-GM-Wuling
Sala á nýjustu gerð rafknúins ökutækis SAIC-GM-Wuling Automobile, ódýrri, fjögurra sæta Wuling fólksbifreið, fór yfir 15.000 eintök fyrstu 20 dagana eftir að hafa komið í sölu þann 24. júlí.
Á sama tímabili fóru pantanir rafbílnum yfir 50.000, að því er kom fram hjá þessu sameiginlegt verkefni á sviði smábíla milli General Motors og SAIC Motor í þessum mánuði.
Sala fyrir fram og pantanir hafa gert þennan smábíl undir merki Wuling vinsælasta rafbílinn sem þeir hafa framleitt.
Ökutækinu, sem kallast Hongguang Mini EV, var hleypt af stokkunum á bílasýningu í Chengdu borgar í Suður-Kína í síðasta mánuði og var byrjunarverð 28.800 júan (ISK 574,000).
Kemst 120 km á einni hleðslu
Bíllinn er með litíumjónarafhlöðum og getur ekið í allt að 120 km á einni hleðslu og á 105 km hraða á klukkustund.
Markhópur viðskiptavina eru ungir ökumenn í kínverskum borgum, samkvæmt SAIC-GM-Wuling.
Í júlí jókst sala fyrirtækisins í Kína fjórða mánuðinn og stökk upp um20 prósent í 130.000 bíla samkvæmt SAIC.
Á fyrstu sjö mánuðunum lækkaði hinsvegar uppsöfnuð afhending bíla um 23 prósent í 661.040 entök og endurspeglaði það mikinn samdrátt í fyrsta ársfjórðungi þegar kórónavírus herjaði á Kína.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Fyrir nokkru var hús rifið í vesturbæ Reykjavíkur sem átti merkan þátt í „bílasögu“ landsins, þótt fáir í dag muni eftir húsinu í fyrsta hlutverki þess. Steindór Einarsson, sem kallaður var bílakóngur Íslands, reisti húsið sem verkstæði og bílageymslu á sínum tíma en hann rak stóra bílastöð í fjölda ára. Hér er stiklað á stóru í sögu þessa merka manns.
„Borgarbílar“ verða örugglega algengari á næstu árum, sérstaklega í þéttbýlum borgum. Við erum ekki alveg komin á þetta stig í okkar næsta nágrenni, en mun þéttbýlli...
BMW mun opinberlega afhjúpa aðra kynslóð BMW 4 seríunnar á morgun, þriðudaginn 2. júní, en myndir sem lekið var á netið sýna nýja hönnun coupé-bílsins að utan...