Atom frá Mahindra
„Borgarbílar“ verða örugglega algengari á næstu árum, sérstaklega í þéttbýlum borgum. Við erum ekki alveg komin á þetta stig í okkar næsta nágrenni, en mun þéttbýlli lönd borð á við Kína og Indland eru fyrir löngu komin á þetta stig.
Þess vegna er fróðlegt að fylgjast með því hvað er að gerast í þessum löndum.
Austur á Indlandi kynnti Mahindra hugmynd að „borgarbílnum“ Atom á bílasýningunni Auto Expo 2020 í febrúar á þessu ári. Búist var við að ökutækið yrði frumsýnt á þessu ári. Því hefur verið frestað vegna yfirstandandi kórónaveirufaraldurs.
Þessa dagana standa yfir síðustu prófanir á bílnum og verða bílar tilbúnir á markað snemma á næsta ári.
Engar upplýsingar liggja að öðru leyti fyrir um tæknileg atriði, en sagt er að bíllinn rúmi fjóra farþega og hann virðist nokkuð hár, svo þetta er enginn leikfangabíll.
Atom mun koma með staðalbúnaði á borð við öryggisbelti og loftkælingu. Enginn öryggisbúnaður eins og öryggispúðar eða ABS verða þó í rafknúna ökutækinu.
Aðrar umfjallanir
Bifvélavirkjar og allir aðrir sem hafa gert við bíla verða oft gáttaðir á því hvernig bíllinn sem er verið að gera við er hannaður með tilliti til...
Polestar breikkar nú vöruframboð sitt af tjúnuðum Polestar Engineered bílum með kynningu á Polestar 2 BST edition 270...
Ford var að senda frá sér kynningarmynd af næsta Ford Ranger og segir að pallbíllinn verði ýmsum góðum kostum gæddur sem auka hagkvæmni og getu.