Tveir rafbílar frá Brimborg í heimsmeistarakeppninni í e-rallý

Fimmtudaginn 20. ágúst síðastlðinn hófst FIA eRally Iceland 2020, alþjóðleg keppni, sem er hluti af mótaröð alþjóðaaksturssambandsins FIA sem það hleypti af stokkunum undir heitinu: FIA Electric and New Energy Championship. Keppnin á Íslandi gefur stig til heimsmeistaratitils og Íslandsmeistaratitils og kallast íslenska keppnin eRally Iceland 2020. Fjögur erlend lið eru skráð til keppni og þrjú íslensk.

image

Aðstoðarökumaður er Pétur Wilhelm Jóhannsson. Á Peugeot e-2008 eru það Hinrik Haraldsson, ökumaður og Marinó Helgi Haraldsson, aðstoðarökumaður.

image

Markmið eRally er að kynna nýjustu tækni ökutækja sem ætlað er að spara orku og gefa frá sér minnsta mögulegt magn mengunar og koltvísýrings.

Því er einnig ætlað að hvetja alla ökumenn til að breyta akstri með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni bílaumferðar með því að nota rafmagn sem drifkraft ökutækja. Heimsmeistaramótið í e-rallý (E-Rally Regularity Cup) er að öllu leyti helgað rafknúnum ökutækjum.

image

Ekki má gera neinar breytingar á bílunum og verða keppendur að geta notað ökutæki sín til daglegrar notkunar. Markmið keppninnar er að keyra akstursleið á ákveðnum tíma og ákveðnum meðalhraða. Til viðbótar þarf ökumaður að huga að rafmagnseyðslunni og halda henni í lágmarki. Refstig eru gefin ef keyrt er of hratt eða of hægt, of stutt eða of langt og einnig eru gefin refsistig ef eyðsla í keppninni er umfram uppgefna raforkunotun bílsins skv. WLTP staðli. Heimsmeistaramótið í e-rallý á Íslandi stendur yfir í 3 daga og hefst 20. ágúst og keyrðir verða 5 leggir með 21 sérleið.

image

Heildarfjöldi kílómetra verða 703,68 og heildaraksturstími verður 14 tímar og 32 mínútur.

Keppnisbílarnir eru Peugeot e-208 og Peugeot e-2008

Peugeot e-208 og Peugeot e-2008 eru báðir 100% hreinir rafbílar og eru nákvæmlega eins og þeir bílar sem Brimborg býður til sölu í sýningarsal Peugeot á Íslandi.

Hægt er að hlaða drifrafhlöðu bílsins bæði heima, í vinnu eða á hraðhleðslustöð og tekur aðeins 30 mínútur að hlaða tóma rafhlöðuna í 80% drægni.

Allir rafbílar Peugeot eru með fjarstýrðum forhitara sem tryggir að bíllinn er alltaf heitur og einnig er varmadæla staðalbúnaður í öllum Peugeot rafbílum. Varmadæla er mikilvægur búnaður í rafbílum, sérstaklega á Íslandi, því hún nýtist best í hitastigi sem er frá -5 til +15.

Allar nánari upplýsingar um eRally Iceland 2020 má finna hér.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is