Volvo rafmagnar alla sína bíla
S60 fólksbifreiðin verður endurnýjuð árið 2022.
Volvo Cars hverfur frá dísilknúinni fortíð sinni og heldur inn í rafmagnaða framtíð, að því að fram kemur í frétt á Automotive News Europe í dag.
Á heimsvísu mun hver ný gerð Volvo vera með rafmótor sem hluti af áætlun sænska bílaframleiðandans um að láta bíla sem eingöngu ganga fyrir rafmagni verða helmingur af sölu þeirra á heimsvísu árið 2025 - en afgangurinn er tvinnbílar.
Búist er við að annar nýr sportlegur rafknúinn crossover - C40 - komi á næsta ári, fylgt eftir með rafhlöðuknúnum XC90 crossover.
Á sama tíma hefur Volvo nýja „plús-stærð“ lúxus crossover í pípunum. XC100, byggður á næstu kynslóð af stigstækkandi grunni Volvo, er lýst sem svari Volvo við Mercedes-Benz GLS og BMW X7.
„Þetta er XC90, Range Rover, Cullinan allt í einu,“ sagði söluaðili sem kannast við áformin hjá Volvo við Automotive News fyrr á þessu ári.
S60: Grunngerð fólksbíla Volvos fær „frískun“ árið 2022 og fær mildan blending sem er staðalbúnað.
T5 „plug-in-hybrid“ gerði af XC40 Volvo er meðal mest seldu bíla Volvo.
XC40: Búist er við að söluhæsta gerð Volvo fái „frískun“ á fyrsta ársfjórðungi 2022. Gerðs em aðeins notar rafmagn, sem við þekkjum hér á landi - XC40 Recharge P8 - mun koma til Bandaríkjanna í haust.
XC90 crossover fékk nýtt grill í uppfærslu síðasta árs. Endurhönnun 2022 mun innifela milda blendingstækni sem staðalbúnað.
XC90: Stóri crossoverinn fékk minniháttar „frískun“ í fyrra, þar á meðal nýtt grill og 2 + 2 + 2 sæti. Áætlað er að endurhönnun verði árið 2022 en þá bætist við framleiðsla í verksmiðju Volvo í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Næsta kynslóð XC90 mun frumkynna nýja SPA2 grunninn og mun innihalda drifrás með mildum-blendingi. Endurhönnuð gerð mun einnig verða með háþróaða sjálfvirka aksturstækni.
(frétt á Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Margt er nú kúnstugt í bílheimum: Hringakstur bíla með hjólhýsi í eftirdragi, ofurlágir bílar og trylltir pallar sem hoppa og skoppa eru þar á meðal.
Á fimmtíu árum má koma einu og öðru í verk. Til dæmis að þjappa saman góðu liði. Hér er saga „EMMSINS“ sögð án margra orða á rúmri mínútu.
190SL var framleiddur frá maí 1955 og til febrúar 1963. Bíllinn var kynntur á Bílasýningunni í New York árið 1954. Þá strax var bíllinn boðinn með lausum harðtoppi...
Ítalska hönnunarhúsið Bertone fagnar 110 ára afmæli sínu árið 2022 og í tilefni þess hefur fyrirtækið kynnt nýjan ofurbíl sem heitir GB110...