Nýr nettur Volkswagen Caddy Mini-Camper opinberaður
- Nýr Volkswagen Caddy Mini-Camper sendibíll er byggður á fimmtu kynslóð Caddy og er með nýhönnuð rúm og glerþak
Á síðustu árum hefur litlum sendibílum sem hefur verið breytt í „ferðabíla“ fjölgað mikið á íslenskum vegum. Núna var Volkswagen að kynna nýtt framlag af sinni hálfu á þessum ferðamáta: Caddy Mini-Camper.
Þessar hugmyndarteikningar eru fyrsta opinbera sýnin á nýja Volkswagen Caddy Mini-Camper. Hann er arftaki gamla Caddy Beach, sem býður upp á úrval af þægindauppfærslum og nokkrum aukabúnaði. Þessi nýi Camper mun verða frumsýndur í september áður en hann fer í sölu síðar á þessu ári.
Að utan lítur Mini-Camper næstum því eins og venjulegi Volkswagen Caddy MPV og er með sömu álfelgur, LED aðalljós, lóðrétt afturljós, þakboga og 1,4 fermetra panorama glerþak og farþegaútgáfan.
Hins vegar hefur Volkswagen breytt innanrýminu í Caddy verulega. Skipt hefur verið um staðalgerð aftursætis og í staðinn er komið tveggja metra langt samanbrjótanlegt rúm og allir aftari gluggar sendibílsins - þar með talið glerþakið - hafa verið útbúnir með gardínum til að koma í veg fyrir að morgunsólin vekji farþegana.
Það sem meira er, hægt er að fjarlægja rúmið alveg til að snúa Mini-Camper aftur í sendibifreið.
Eins og venjulegur Caddy, þá fær Mini-Camper nýjasta MIB3 upplýsinga- og afþreyingarkerfi Volkswagen, sem er með miðjuskjá sem er allt að 10 tommur á breidd. Það verður til fjöldi af öryggisbúnaði, svo sem akreinavörn, viðvörun um umferð fyrir að aftan og eftirvagnshjálparkerfi Volkswagen, sem gerir drátt á eftirvagni mun auðveldari.
(frétt á Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Árið 2021 munu VDL Bus & Coach verksmiðjrnar í Hollandi kynna nýja kynslóð af Citea strætisvögnum. Við hönnun þessara vagna var sköpuð ný framtíðarsýn við framleiðslu...
Staðfest er að Ineos Grenadier verði vetnisknúinn með tækni frá Hyundai. Prófanir á vetnisútgáfu jeppans hefjast í lok ársins 2022.
Áður en akreinarviðvörunarkerfi, blindblettavöktun og bakkmyndavélar voru til, var bílaheimurinn með eina mikilvægustu öryggistækni sem fundin hefur verið upp - bremsuljós. Þó að bremsuljós séu á öllum bílum í dag, var það ekki alltaf svo. Reyndar er saga bremsuljósa áhugaverð.
Í bíltúr í gær um Hafnarfjörðinn, kom ég auga á ljómandi fallega bíla fyrir framan RAG í Hjallahrauni. Kom í ljós að þetta eru kínverskir rafbílar af gerðinni DFSK Series 3 og er Rafn Arnar Guðjónsson umboðsaðilinn á Íslandi.