Ending heddpakkninga
Nýlega birti Consumer Report (CR) skýrslu þar sem fjallað er um bíla sem líklegt er að skipta þurfi um heddpakkningu í, og hvaða bílar gætu komið í staðinn fyrir þá eins og sjá má hér.
Það er ekki víst að allir þessir bílar fyrirfinnist á Íslandi en CR eru Amerísk samtök. Eins vantar þá væntanlega í þetta bíla sem eru ekki seldir í Ameríku.
Á myndinni er dæmigerð hedd- eða strokklokspakkning.
Stálþynnan á myndinni hér fyrir ofan er þéttingin á milli vélarblokkarinnar og strokkloksins. Á henni eru þéttingar í kringum göng fyrir kælivökva og olíu en líka í kringum strokkana. Þetta er góð hönnun sem getur enst hundruð þúsunda kílómetra ef viðhaldi er sinnt, réttir vökvar notaðir og vélin ofhitnar ekki. En þetta gildir greinilega ekki um alla bíla, jafnvel sum „fínu“ merkin eru með vélar sem „sprengja“ heddpakkningu löngu áður en ætla skyldi. Endingin er ekki nógu góð eins og CR hefur komist að.
Hver borgar svo brúsann? Líklega ekki bílaframleiðendurnir.
Aðrar umfjallanir
Fyrir fáeinum mánuðum bættist enn einn kjörgripurinn við fagran bílaflota Samgönguminjasafnsins að Ystafelli. Það er Armstrong Siddeley Hurricane, árgerð 1946 en aðeins 2.606 eintök voru framleidd af þessari snotru gerð.
Lewis Hamilton dulbúinn sem „eldri“ verkfræðingur kom grunnskólakrökkum í Camden rækilega á óvart! Sjáðu viðbrögðin í myndbandinu.
BERLIN – Kínverska rafmagnsframleiðandinn Nio mun koma með nýja almenna rafmagnsmerki sitt til Evrópu nokkrum mánuðum eftir að það
MÍLANÓ - Fiat ætlar að afhjúpa afbrigði af nýja 500 rafmagnsbílnum í næsta mánuði með lítilli viðbótar hliðarhurð sem opnast fram sem veitir...