Fyrstu DBX sportjeppar Aston Martin rúlla af framleiðslulínunni
Afhendingar á DBX sportjeppanum hefjast síðar í þessum mánuði.
LONDON - Fyrsti DBX sportjeppi Aston Martin rúllaði af framleiðslulínunni í Wales á fimmtudag.
Þessi bíll er lykillinn að vonum framleiðandans um viðsnúning hjá fyrirtækinu sem hefur séð breytingar á stjórnun og eignarhaldi á síðustu mánuðum.
Bílaframleiðandinn hefur átt erfitt uppdráttar síðan árið 2018 þar sem salan olli vonbrigðum og það skorti reiðufé, sem varð til þess að fyrirtækið leitaði nýrrar fjárfestingar hjá milljarðamæringnum Lawrence Stroll.
Aston Martin DBX er fyrsti sportjeppinn frá þessum virta breska framleiðanda. Hann er með hönnunareinkenni sem svipar mjög til annarra bíla frá þeim, svo sem EB-5 bílsins sem James Bond notar oft í „sinni vinnu“. Aðalljósin og grillið eru auðþekkjanleg sem Aston Martin, en hönnunin að aftan er nánast eins og á Vantage coupé-bílnum. DBX er með 4,0 lítra tveggja forþjöppu vél sem gefur 542 hestöfl og 698 Nm vægi. Sportjeppinn kemur með níu þrepa sjálfskiptingu og aldrifi.
Síðan þá hefur fyrirtækið tilkynnt um fækkun starfa, skipt um yfirmann og hefur valið sér nýjan yfirmann fjármála í röð breytinga þar sem það bregst einnig við kórónavírus faraldrinum.
„DBX er bíllinn sem mun keyra Aston Martin inn í djarft nýtt tímabil,“ sagði Marek Reichman, yfirmaður hönnunar Aston. Afgreiðsla á bílnum hefst síðar í þessum mánuði.
Hætta varð vinnu í nýju St Athan verksmiðju fyrirtækisins í Suður-Wales, þar sem bíllinn er smíðaður, í mars þar sem lokunin stöðvaði efnahagslífið.
Framleiðsla hófst að nýju í maí með öryggisráðstöfunum á sínum stað, en bifreiðaframleiðandinn hefur enn ekki stillt endurræsingardag fyrir ensku verksmiðjuna sína í Gaydon, þar sem sportbílar þeirra eru smíðaðir.
(Reuters)
Aðrar umfjallanir
Víraður bíll, bíll sem hljómar eins og gæs og dádýr sem rústaði ökutæki að innan… Já, það virðist vera að jólahlaðborðið sé ívið snemma á ferðinni í ár en samt er þetta allt og meira til á seðli vikunnar af verkstæðisvitleysu!
Bílablaðamaðurinn Greg Rasa sem skrifar fyrir Autoblog birtir tvö myndbönd af nánast óbreyttum Bronco sem ekið er um Rubicon Trail, 35 kílómetra...
Ávörðunin endurspeglar áherslur Ola Kallenius forstjóra Mercedes á rafbíla, þar sem bílaframleiðandinn hverfur frá bílum með brunahreyfla.
Fyrsti framleiðslubíllinn frá Rimac er loksins tilbúinn og kominn á götuna.