Audi Q4 Sportback E-tron er sjöundi rafbíll framleiðandans á árinu 2021
- Coupé útgáfa af Q4 E-tron sportjeppanum kemur á næsta ári og lofar allt að 500 kílómetra akstursvegalengd á rafmagi
„Q4 er aðallega knúinn áfram af aftari mótornum sínum, en sá fremri er aðeins kallaður til þegar þörf er á“.
Q4 Sportback er aðeins lægri en systkini Q4.
Audi E-tron - innrétting Ljós og létt efni prýða efri fleti sem gefur góða og léttari tilfinningu.
Q4 fylgir öðrum E-tron gerðum með því að vera með lokaða útgáfu af grilli Audi.
Q4 er fyrsti bíll Audi sem tileinkar sér sérhæfðan MEB rafbílagrunn frá VW Group.
Rúmgott innanrými í Audi E-tron.
Audi Q4 Sportback E-tron mun koma árið 2021 - ein af sjö rafmagns E-tron gerðum sem verða til sölu á næstu 18 mánuðum. Árið 2025 hyggst Audi vera með 20 rafbíla.
Q4 Sportback E-tron er vélrænt séð eins og Q4 E-tron systkini hans sem kynnt var á bílasýningunni í Genf í fyrra. Báðar gerðirnar munu koma á sama tíma, en því er spáð að jeppaútgáfan verði vinsælli.
Mál þessara tveggja Q4 gerða eru næstum eins og eru aðeins minni en Audi A3. Í 4,6 metra langri og 1,6 metra hæð er Q4 Sportback 1 cm lengri og lægri en Q4. Breiddin er sú sama í 1,9 m með hjólhafið 2,77 m.
Þó að bæði Q4 Sportback sem sést hér á myndunum og Q4 sem þegar hefur sést séu hugmyndabílar, verða framleiðsluútgáfur næsta árs mjög svipaðar. Talandi um Sportback sagði hönnuður bílsins að utan, Amar Vaya: „Það er 90% þar - við höfum gert hugmyndina aðeins breiðari og aðeins lægri - og smá atriði í útliti stuðara munu breytast. Það verða hurðarhandföng, frekar en aðfelld handföng hugmyndabílsins“.
Gerðin fær um 450 km aksturssvið samkvæmt WLTP. Í afturhjóladrifi eykst þetta í 498 km. Rafhlaðan, sem er undir gólfi, er með 82 kWh afkastagetu, eining sem hægt er að hlaða að hámarki 125 kW, sem leiðir til 80% hleðslu á 30 mínútum.
Innréttingin er samhljóða Q4 E-tron, með stafrænum stjórnklefa, 12,3 tommu snertiskjá hallað í átt að bílstjóranum, nýr og betri sprettiskjár í sjónlínu ökumanns og ný e-tron skipting. Raunverulegir hnappar eru enn til staðar til að stjórna loftkælingunni.
Af sjö rafbílum frá Audi sem koma á árinu 2021 eru E-tron og E-tron Sportback þegar komnir í sölu. Nýr E-tron S hefur nýlega komið í ljós og þar er einnig Q2 L E-tron aðeins fyrir Kína. E-tron GT, Q4 E-tron og Q4 Sportback E-tron koma á markað á næsta ári. Aðrar gerðir sem ekki hafa enn verið staðfestar gætu verið flaggskipið A9 E-tron og framleiðsluútgáfa af AI-ME, talin nokkurs konar arftaki A2 og nefndur A2 E-tron.
(byggt á grein á Autocar)
Aðrar umfjallanir
Það sperrtu margir augu og eyru þegar það fréttist að auðmaðurinn Jim Radcliffe, ríkasti maður Bretlands og sá, sem keypt hefur fjölmargar jarðir á Norðausturlandi til að vernda íslenska...
Nei, þessi grein hefur ekkert með Charles Darwin að gera. Hér verður í stuttu máli fjallað um uppruna nokkurra elstu bíltegundanna og fyrirtækin sem stóðu á bakvið þær.
Það var vel við hæfi að hafa þessa frumsýningu á nýjum rafbíl í þessu húsi, því Gróska hugmyndahús er suðupottur nýsköpunar á Íslandi...
Volkswagen hefur farið sér hægt varðandi „alvöru“ torfærubíla, en þó hafa öðru hvoru borist fréttir af því að þar á bæ...