Uppfærður VW Tiguan verður endurhlaðanlegur tengitvinnbíll
- Volkswagen kemur fram með uppfærslu á Tiguan, hann kemur nú sem endurhlaðanlegur tengitvinnbíll (hybrid)
Volkswagen Tiguan er einn mest seldi sportjeppinn í Evrópu og er jafnframt meðal söluhæstu sportjeppa í heiminum.
Árið 2019 varð Tiguan mest seldi bíll allra gerða, ekki aðeins fyrir Volkswagen vörumerkið, heldur einnig í allri Volkswagen samstæðunni, með 911.000 bíla framleiðslu.
Tiguan fær yfirgripsmikla uppfærslu. Framkvæmdastjóri Volkswagen, Ralf Brandstätter, segir:
„Við hleyptum af stokkunum alþjóðlegum sportjeppa okkar með kynningu á annarri kynslóð Tiguan árið 2016. Þetta varð grunnurinn að nokkrum árangursríkum gerðum um allan heim. Volkswagen tekur nú næsta skref með því að rafvæða, stafræna og gera nýjan Tiguan tengdan. Þetta mun gera þennan sportjeppa okkar viðeigandi fyrir áskoranir í dag.
Endurhlaðanlegur hybrid eða blendingur
Volkswagen rafmagnar Tiguan með tengitvinngerði, með 245 hestöfl. Tiguan eHybrid byrjar alltaf í fullum rafmagnsham, E-MODE, svo framarlega sem rafhlaðan sé nægilega hlaðin.
Aksturssviði verður allt að 50 km samkvæmt WLTP-staðli (ekki enn fullprófað). Þetta mun duga fyrir mjög marga miðað við meðaltal daglegs aksturs.
Kerfið gerir það einnig mögulegt að spara rafmagnið til notkunar seinna, til dæmis til aksturs um þéttbýlisvæði sem eru með kröfur varðandi losun útblásturs.
Tiguan R
Í fyrsta skipti kemur nú eigin Tiguan R gerð, með 320 hestafla TSI vél.
Nýtt 4x4 kerfi með glænýrri spólvörn hefur verið þróað fyrir þessa gerð. Kerfið dreifir drifkraftinum á breytilegan hátt milli fram- og afturöxla og milli vinstri og hægri afturhjóla og stuðlar að betri akstureiginleikum.
Hinar ýmsu akstursstillingar (þægindi, sport, hraðakstur, einstakur, snjór og torfærur) gefa ökumanni marga möguleika til að aðlaga aksturinn að eigin ósk.
Aðrar nýjungar
Nýr Tiguan kemur með nýjar TDI vélar sem Volkswagen fullyrðir að séu með þeim hreinustu í heiminum.
Travel Assist kerfið veitir akstursaðstoð allt að 210 km / klst.
Nýjasta kynslóð upplýsinga- og afþreyingarkerfis (MIB3) þýðir að nýr Tiguan hefur fjölda nýrra eiginleika til að tengjast netþjónustu. Glænýtt Harman / Kardon 480-watta hljóðkerfi er einnig meðal nýjunga.
Sveigjanlegur sportjeppi
Eins og forverar hans er Tiguan mjög sveigjanlegur í notkun með burðargetu allt að 2,5 tonn.
Framendi hins nýja Tiguan hefur verið endurnýjaður. Vélarhlífin er hærri og grillið með LED aðalljósum er breiðara, með nýja Volkswagen merkið í miðju að framan. Stuðararnir eru líka glænýir.
Samkvæmt bílavefsíðum er reiknað með að opnað verði á sölu á bílnum seinna í sumar.
(byggt á fréttum á BilNorge og Wolkswagen – myndir VW)
Aðrar umfjallanir
Talið er ólíklegt að næsta kynslóð Volkswagen Passat verði í boði sem hefðbundinn fólksbíll, þar sem nýja gerðin verður fáanleg stationgerð eða sem hlaðbakur...
Porsche hefur tilkynnt að þeir hafi sett nýtt „sportjeppamet“ á Nürburgring kappasktursbrautinni með nýju öflugu útgáfunni af Porsche Cayenne. Porsche á...
Mercedes EQA mun fá fólksbíls-útgáfu, sem situr á sama grunni og alrafmagnaði Mercedes sportjeppinn...
Þetta er frekar skondinn bíltúr. Mat Wilson sem er maðurinn sem stendur að Carwow fær móður sína í bíltúr á hennar bíl til að sjá hvort hún vilji selja bílinn sem er Tesla...