INEOS Automotive sýnir ytri hönnun væntanlegs Grenadier-jeppa
Bifreiðaframleiðandinn INEOS Automotive afhjúpaði í dag ytri hönnun Grenadier, væntanlegs jeppa fyrirtækisins fyrir heiminn, enn eitt skrefið á leiðinni í átt að framleiðslu.
- „Form fylgir virkni“ í verkfræðistýrðu hönnunarferli sem beinist að því að skila ökutæki til að vinna verk
- Þróunaráætlun gengur áfram, með frumgerðaprófum með akstri 1,8 milljóna km á vegum og torfærum á komandi ári
- Grenadier, sem var búinn til að uppfylla framtíðarsýn ævintýramannsins og stjórnarformanns INEOS hópsins, Sir Jim Ratcliffe, verður hæfur, endingargóður og áreiðanlegur jeppi hannaður og smíðaður til að takast á við erfiðasta umhverfi heimsins
- #GrenadierUnwrapped
Grenadier er með mörg af upprunalegum hönnunareinkennum gamla Land Rover Defender, sem hætti í framleiðslu 2016 eftir 67 ára sögu, þar á meðal formið á vélarhlífinni, flatri framrúðu og áberandi línu sem liggur eftir hlið ökutækisins.
Í dag, miðvikudaginn 1. Júlí, var hulunni svift af jeppa sem margir hafa beðið eftir, jeppa sem er hannaður og smíðaður í anda „gamla góða Land Rover“, en með nýjustu tækni og styrkleika. En þetta er nýi Grenadier-jeppinn frá INEOS sem er í eigu Sir Jim Ratcliffe, sem hefur komið við sögu hér á landi sem eigandi laxveiðijarða á norðausturlandi.
En í þessu fyrsta stig „frumsýningarinnar“ er aðeins ytra byrðið sýnt auk þess sem grindin í bílnum hefur sést á mynd.
INEOS Grenadier er smíðaður frá grunni og hefur verið hannaður með tilgangi: þ.e. einkum til að mæta kröfum eigenda framtíðar um harðgert, hæft og þægilegt farartæki sem vinnur hvar sem er.
„Að sýna hönnunina núna gerir okkur kleift að einbeita okkur að mikilvægu næsta stigi þróunar ökutækisins, prófa getu þess og endingu.
Við erum með mjög krefjandi áætlun fram undan, þar sem við leggjum frumgerðir í gegnum allar aðstæður, á leiðinni til að safna um 1,8 milljónum reynsluaksturskílómetra á komandi ári. Frá og með deginum í dag er búið að opna á þetta. Að prófa „fyrir augliti“ án þess að þurfa að vera með feluliti, frauðplast eða aukahlífar er aukinn kostur. ”
Eins og þú munt sjá í dag hafa Toby og hans lið unnið frábært starf við að skila hönnun sem er bæði áberandi og markviss. “
Fékk nafnið eftir kránni í London þar sem hugmyndin fæddist
Jeppinn, sem er nefndur eftir krá í Lundúnum, notar hefðbundna „stigagrind“ sem er notuð til að gefa styrk fyrir akstur í torfærum.
Grenadier kemur í sölu seint á árinu 2021. Hann verður með ýmsum sex strokka bensín- og dísilvélum frá BMW og verður smíðaður í nýrri verksmiðju í Bridgend, Wales.
Ineos hefur áður sagt að verksmiðjan muni að lokum ráða allt að 500 starfsmenn sem hluta af 600 milljón punda fjárfestingarinnar. Grenadier er þróaður að hluta af af Magna Steyr.
Ineos hefur ekki gefið upp verð fyrir bifreiðina en fjölmiðlar í Bretlandi hafa greint frá því að það muni byrja á um 40.000 pundum (um 6.8 milljónum króna), svipað og byrjunarverð nýja Land Rover Defender.
Fleiri gerðir
Grenadier sviðið mun einnig innihalda fimm dyra lengri gerð og fjögurra dyra pallbíl, en fyrirtækið hefur gefið í skyn að fleiri ökutæki muni fylgja í kjölfarið. Fyrirtækið stefnir að því að selja til viðskiptavina sem nú keyra pallbíla eins og Ford Ranger, Toyota Hilux, Mitsubishi L200 og Nissan Navara ..
Um upphaf INEOS Grenadier
Árið 2017 kom stjórnarformaður INEOS, Sir Jim Ratcliffe, bílaáhugamaður og reyndur ævintýramaður, auga á gat á markaðinn fyrir einfaldan, nýtingargóðan, vinnusaman 4x4-bíl, hannaðan fyrir nútímann og áreiðanleika. INEOS Automotive Limited var stofnað og teymi sérfræðinga í bílgreininni sett saman til að koma sýninni að veruleika.
Í verkfræðihlutanum erum við núna í röð þróunarstiga, studdir af samstarfsfélaga okkar á sviði tækninnar, Magna Steyr, með frumgerðapróf í gangi. INEOS Grenadier mun fara í framleiðslu seint á árinu 2021.
INEOS Automotive er dótturfyrirtæki INEOS Group (www.ineos.com), leiðandi framleiðandi á jarðolíu, sérhæfðum efnum og olíuvörum. Hjá því starfa 23.000 manns í 34 fyrirtækjum, með framleiðslukerfi sem spannar 183 framleiðslustöðvar í 26 löndum. Allt frá málningu til plasts, vefnaðarvöru til tækni, lyfjum til farsíma, efni framleidd af INEOS bæta nánast alla þætti nútímalífsins. Árið 2019 var sala INEOS um það bil 61 milljarður dollara.
(byggt á fréttatilkynningu frá INEOS og Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
MG Motor endurskoðar hefðbundna fortíð sína fyrir sportbíla með Cyberster rafknúna Roadster hugmyndabílnum sem er bresk hönnun...
„Hættu að rembast við að keyra úr því að þú getur það ekki. Taktu leigubíl eða strætó,“ skrifaði íslenskur maður í lesendadálk dagblaðs árið 1985. Sannfærður um að konur í umferðinni væru rót alls ills, bjóst hann ábyggilega ekki við svari úr „neðra“.
Þetta er ekki fyrsti bíllinn sem Paul hinn pólski gerir upp. Hann hefur gert upp sjúkrabíla, rallýbíla, löggubíla, strætisvagna, trukka og ég veit ekki hvað og hvað! Meira að segja hefur hann gert ljóta skriðdreka fína.
Nissan hefur bætt við kynningu á komandi Z sportbíl, með nýju myndbandi sem forskoðar vélarhliðina - og staðfestir að bíllinn muni koma með beinskiptingu...