2021 Ineos Grenadier: nýi jeppinn verður opinberaður 1. júlí
- Nýlegar felumyndir af frumgerðinni í akstri sýna jeppa sem er klassísk hönnun innblásin af gamla góða Land Rover Defender
Ineoas hefur sent frá sér þessa mynd sem sýnir hluta af vélarhlífinni.
Ineos Grenadier eins og teiknarar Autocar ímynda sér að bíllinn muni líta út.
Á þessari mynd má sjá grindina í nýja Grenadier-jeppanum og hún er greinilega öflug.
Við birtum hér á vefnum á dögunum myndir af nýja Ineos Grenadier jeppanum í reysluakstri, að vísu í felulitunum, en núna segir Autocar að bíllinn verði frumsýndur í vikunni, nánar til tekið miðvikudaginn 1. Júlí.
Kynntur í vikunni
Ineos mun afhjúpa þennan nýja jeppa, miðvikudaginn 1. júlí, aðeins nokkrum dögum eftir að framleiðsla sérstakrar frumgerðar sást í fyrsta skipti.
Njósnamyndir frá því fyrr í þessum mánuði, og við birtum einnig á dögunum. sýndu prófanir á frumgerð í prófunarstöð á Bretlandi.
Þrátt fyrir að við vissum að þetta væri alvöru torfærubíll sem þróaður var með innblæstri frá upprunalega Land Rover Defender, staðfesta myndirnar að kassalaga form bílsins er til staðar. Að framan af getum við líka séð svip á fyrstu útgáfur af Mercedes-Benz G-Wagen. Ný kynningarmynd frá fyrirtækinu sýnir vélarhlíf í Defender-stíl með loftinntökum og áberandi festingum.
Skýrasti innblásturinn frá Defender er að framan, þar sem Grenadier virðist deila sömu rúnnuðu framljósum og láréttri hönnun á grillgrind hönnun.
Fyrr á þessu ári var röð af myndböndum sýnd á vefsíðu Ineos. Áhorfendur fengu ítarlegt yfirlit yfir grindarhlutann í Grenadier og fjöðrun að framan og aftan.
Verkfræðistofan Magna Steyr, sem sér um framleiðslu á Mercedes-Benz G-Class, Jaguar I-Pace og Toyota GR Supra, mun aðstoða við að koma 4x4 í framleiðslu.
Núna er bara að bíða og sjá hvernig þessi nýi jeppi muni líta út í smáatriðum.
Aðrar umfjallanir
Rússland endurvekur Moskvich vörumerki Sovéttímans með kínverskum grunni...
Ford Bronco var kynntur árið 1966 og breyttist lítið í gegnum árin enda var bíllinn framúrskarandi vinsæll og þótti vel heppnaður í alla staði. Grjótharður nagli, hagnýtur...
Vörubílstjórar eru auðvitað á ferðinni á undarlegustu tímum og það er einmitt þá sem undarlegir hlutir eiga sér stað. Sögur bandarískra vörubílstjóra eru fjölmargar og hér er ein góð - um það sem ekki er á ferli í dagsbirtu!
Þeir eru misjafnir eins og aðrir bílar „pikkararnir“ eða pallbílarnir eins og þeir heita víst. Eftir mikið grams klastraði ég saman lista yfir þá tíu pallbíla sem margir bílablaðamenn virðast sammála um að séu vondir og mislukkaðir.