Nýr Nissan Rogue kynntur fyrir Bandaríkjamarkað
- Er „Ameríkuútgáfan“ af Nissan X-Trail
- Er væntanlega forsmekkur á nýjan X-Trail í Evrópu og væntanlega líka á nýjan Qashqai
Nissan í Ameríku hefur kynnt nýja kynslóð af Rogue. Það gefur vísbendingu um það sem við eigum væntanlega í vændum varðandi nýja X-Trail og Qashqai.
2021 árgerðin af Nissan Rogue, sem er Ameríkugerðin af Nissan X-Trail. Myndir Nissan.
X-Trail í dag og Qashqai í dag hafa verið á markaði síðan 2013. Þrátt fyrir að þeir hafi fengið nokkrar uppfærslur í gegnum tíðina er nú tími fyrir kynslóðaskipti.
Nýi Rogue, sem nú er til sýnis í Bandaríkjunum, hefur verið endurhannaður, bæði að utan og innan, og hefur fengið mikið af nýjum búnaði til að bæta öryggi og þægindi.
Samt er bíllinn tiltölulega kantaður, með íhaldssama hönnun - að minnsta kosti þegar hann er borinn saman við nýja Nissan Juke.
V-grill Nissan er auðvitað að framan ásamt nýjum LED framljósum - sem er smám saman að verða staðalbúnaður í þessum flokki.
Innandyra eru allir nýir og bandarískir fjölmiðlar sem hafa fengið kynningu á dýrari valkostum bílsins segja að hann líti mjög vel út með leðri og flottir saumar á sætum og mælaborði ásamt viðarútliti.
Svona álítur teiknarinn Jean Francois Hubert hjá SB-Medien að nýi Nissan Quashqai á Evrópumarkði muni líta út.
Ódýrustu gerðirnar fá 8 tommu skjá á mælaborðinu fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfið ásamt 7 tommu skjá sem mælaborð. Hærra búnaðarstig fær 9 tommu skjá fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfið og 12,3 tommu mælaborðsskjá auk 10,8 tommu upplýsingaskjá í sjónlínu ökumanns.
Allar gerðirnar eru með Bluetooth-tengi með Apple CarPlay og Android Auto, þráðlausri tengingu og hleðslu farsíma í dýrari gerðunum.
Á öryggissviðinu eru allar Rogue gerðir í Bandaríkjunum búnar sjálfvirkri neyðarhemlun, blindhornsviðvörun, akreinahaldara og sjálfvirkri skiptingu milli lágu og háu ljósanna. „ProPilot Assist“ býður upp á aðlagaðan skriðstilli á hraða niður í núll.
(byggt á veg Nissan í Ameríu og frétt á BilNorge).
Aðrar umfjallanir
Land Rover vinnur að V8 útgáfu af nýja Defender, breski bílavefurinn Autaocar sýnir okkur njósnamyndir af þessari...
Aðalspaugið á Twitter síðustu klukkutímana er fréttatilkynning formúluliðsins BWT Alpine um að Oscar Piastri muni aka fyrir liðið frá 2023 í stað Fernando Alonso sem fer yfir til Aston Martin. Málið er að Piastri kannast ekki við að hafa skrifað undir eitt eða neitt og er hundfúll út í Alpine.
Er bílahönnun orðin of einsleit? Vill fólk fleiri furðubíla? Það er mat mannsins í skræpóttu skyrtunni. Lof mér að kynna: Bob Sorokanich, ritstjóra Jalopnik.
Volkswagen hefur verið að prófa nýja Tiguan og þessar nýjustu myndir á vef Auto Express sýna vel nýja bílinn sem er að vísu ekki ráðgerður fyrr en 2024.