Nýr Volkswagen ID 4 sýndur ódulbúinn í kínverskum skjölum
- Myndir af annarri gerðinni í mikilvægri uppbyggingu VW hafa komið fram úr skjölum sem lögð voru fyrir kínversk stjórnvöld
Væntanlegur rafmagns crossover ID 4 frá Volkswagen hefur verið opinberaður ódulbúinn áður en fyrirhuguð frumsýning verður síðar á þessu ári í myndum sem lagðar voru fram hjá kínverskum yfirvöldum.
Myndirnar tvær sem fylgja hér með þessari frétt sýna framleiðsluútgáfuna af „crossover“, sem í upphafi verður boðinn með afturhjóladrifi og allt að um 500 kílómetra akstursvegalengd á rafmagnshleðslunni, voru að finna í VW skjölum sem fyrirtækið lagði fram til iðnaðar- og upplýsingatæknisráðuneytis Kína (MIIT).
Myndirnar eru hluti af skjölum sem öll fyrirtæki verða að leggja fram til að fá gerðarviðurkenningu fyrir gerðir í Kína.
Myndirnar sýna hvernig ID 4 mun líta út í framleiðslugerð og staðfesta að eins og búist var við mun bíllinn deila svipaðri hönnun og eiginleikum og ID 3. Skjölin staðfesta einnig að bíllinn verður 4592 mm langur, 1852 mm á breidd og 1629mm á hæð, með hjólhaf 2765mm. Upphaflega mun kínverska gerðin hafa 201 hestafla drifrás.
Rafknúni bíllinn verður lykilatriði í framleiðslu rafbíla fyrirtækisins og sameinast ID 3 þegar hann fer í sölu er til sölu í Evrópu, Kína og Bandaríkjunum árið 2021.
VW sýndi bílinn í felulitum í útsendingu á netinu,eins og sjá má hér, í stað fyrirhugaðs blaðamannafundar á aflýstu bílasýningunni í Genf. Þá var nýi bíllinn sýndur í tveggja tóna blárri útgáfu af búningnum sem var notaður fyrir ID 3 og sýnir greinilega mörg stílatriði framleiðslugerðarinnar. Vefútsendingin var einnig í fyrsta skipti sem VW staðfesti opinberlega að gerðin myndi bera ID 4 nafnið.
ID 4 átti að koma fram á bílasýningunni í New York í ár en eftir að þeirri sýningu var frestað vegna kórónaveirunnar, en búist er við að frumsýningin fari fram á næstu mánuðum.
ID 4 verður í upphafi seldur með einum rafmótor og afturhjóladrifi, en síðan með öflugara tveggja mótora fjórhjóladrifi sem boðið verður upp á á fyrstu 12 mánuðum sölunnar, að sögn Ralf Brandstätter, aðalstjórnanda Volkswagen.
ID 4 verður í boði með á úrval af mismunandi rafhlöðuvalkostum, sá stærsti, sem er orðrómur um að sé 83kWh eining, mun bjóða allt að 497 kílómetra aksturssvið samkvæmt WLTP prófunarlotunni.
ID 4 bíllinn sem er svipaður að stærð og Volkswagen Tiguan, mun einnig bjóða upp á hraðhleðslu sem gerir kleift að hlaða rafhlöðuna í 80% hleðslu innan 30 mín á 125-150kW kerfi.
Framleiðsla á ID 4 er fyrirhuguð í verksmiðjum í Þýskalandi, Kína og Bandaríkjunum og tryggja stöðu sína sem alþjóðlega gerð, ólíkt ID 3 sem ekki er fyrirhugað að selja í Bandaríkjunum.
Aðrar umfjallanir
Mesti hlunkur sem Toyota hefur framleitt er Toyota Mega Cruiser. Hafa lesendur heyrt um þann bíl? Hann var fyrst og fremst framleiddur fyrir herinn en 133 eintök voru framleidd fyrir almennan markað.
Polestar 2 hefur hlotið einkunnina „Góður“ í nýjustu prófunum á ökumannsaðstoð af Euro NCAP, einni af leiðandi öryggisprófunarstofnunum heims...
Nei, þessi grein hefur ekkert með Charles Darwin að gera. Hér verður í stuttu máli fjallað um uppruna nokkurra elstu bíltegundanna og fyrirtækin sem stóðu á bakvið þær.