Enn einn crossover sportjeppi frá VW
- Þriðji smájeppinn er á leiðinni frá VW. Hann er frumsýndur núna í Suður-Ameríku og mun koma til Evrópu eftir rúmt ár að sögn danska bílablaðsins Motor, sem gefið er út af samtökum bifreiðaeigenda í Danmörku. En af hverju í ósköpunum er VW að koma með þrjá litla sportjeppa í sömu stærð?
VW Nivus er nýjasta gerðin frá VW. Nú er honum hleypt af stokkunum í Suður-Ameríku.
Greinilegt er að VW hefur ekki fengið nóg af crossover-sportjeppum. Þegar er VW með T-Cross og T-Roc, og nú bæta þeir þeim þriðja við!
Þetta mun gerast seinni hluta ársins 2021, þegar bílarnir rúlla frá Volkswagen-verksmiðju einhvers staðar í Evrópu.
Nivus er innan nokkurra cm á stærð við bæði T-Cross og T-Roc. Tæknilegur grundvöllur er frá Golf, hugsanlega í gömlu kynslóðinni.
Eins og T-Roc er Nivus byggður á grunni Golf - MQB, hann er fjórum cm lengri og er með hjólhaf sem er þremur cm styttra.
Þannig er Nivus raunverulega svipaður að stærð og bæði T-Roc og T-Cross.
Nivus er frábrugðinn T-Cross og T-Roc helst í því að vera með meiri coupé-líkan afturhluta.
Nivus er með eins konar copupé sportjeppahönnun, en það er T-Roc að hluta með líka, svo það er óljóst hver tilgangur Nivus er. Það keumr fram í Motor að danski innflytjandinn ekki heyrt neitt um hvernig bíllinn er verðlagður miðað við T-Cross og T-Roc.
Núna er það líka spennandi að fylgjast með þvi hvort þessi nýi sportjeppi frá VW bætist við framboðið hjá Heklu á næsta ári, og þá á hvaða verði ef af verður.
Vissulega virðist það þó sem svo að bíllinn muni ekki eiga að heita Nivus í Evrópu, en hvað nafnið verður er ekki vitað í dag.
Aðstaðan að innan minnir á nýjar evrópskar VW gerðir, en er ekki eins háþróuð: það er til dæmis engin rafræn handbremsa eða gírskipting.
Aðrar umfjallanir
Bílaumboðið Askja - Notaðir bílar, Bílaland, Hyundai notaðir bílar, Bílabankinn og Bílamiðstöðin eru búin að koma sér fyrir á nýju og sameiginlegu...
Eftir keppni dagsins í Katar er af svo mörgu að taka að maður fer næstum í flækju. En sleppum flækjunni og skoðum það helsta!
Það gæti farið svo að við gætum séð rafmagnsútgáfu af hinum klassíska Mini, breskum borgarbíl sem var framleiddur af BMC og arftaka hans frá 1959 til 2000.