Nýr Nissan Qashqai sést í prófunum á njósnamyndum í fyrsta skipti
- Hinn nýi Nissan Qashqai í þriðju kynslóð hefur sést í frumgerð í fyrsta skipti en frumsýning mun verða síðar á þessu ári
Við höfum fjallað nokkrum sinnum um þriðju kynslóð Nissan Quasqai sem væntanlega verður frumsýnd á árinu, en fram að þessu hefur ekki verið vitað um útlitið að neinu ráði.
Þriðja kynslóð hins gríðarlega vinsæla sportjeppa kemur í sölu á næsta ári og stefnt er að því að hún verði áfram smíðuð í verksmiðjum japanska fyrirtækisins í Sunderland á Englandi.
Með því að vitað er að Nissan ætlar að fækka í framboði sínu í Evrópu sem hluta af minnkun kostnaðar og endurskipulagningu mun nýi Qashqai skipta miklu máli fyrir fyrirtækið. Það seldi meira en 230.000 eintök af bílnum um alla Evrópu árið 2018 og var hann fimmti mest seldi bíllinn í Bretlandi í fyrra, þrátt fyrir aldur og aukna samkeppni í sínum flokki.
Náðust á mynd í prófunum
Ljósmyndarar náðu þremur frumútgáfum af nýjum Qashqai sem voru í rensluakstri í prófunarstöð. Þar sem bílarnir eru í felulitum, benda ljósmyndirnar til þess að nýi Qashqai muni hafa í meginatriðum kunnuglegt útlit, þó það sé uppfært með kantaðri hönnun Nissans, sem sést á nýlega afhjúpaða nýja Juke. Framendi bílsins lítur líka út fyrir að vera aðeins lægri en í fyrri gerðinni.
Nýi Qashqai mun halda áfram að nota CMF-grunn Renault-Nissan-Mitsubishi bandalagsins, sem einnig er notaður fyrir Renault Kadjar og stærri Nissan X-Trail.
Væntanlega ekki dísil en meira rafmagn
Þótt það sé ekki staðfest, segir Autocar það líklegt að Nissan muni ekki bjóða upp á neinar dísilvélar fyrir nýju gerðina, heldur mun bjóða upp á aukið úrval rafmagnsafls, allt frá 48V mildum blendingum til tengitvinnbíls sem byggir á Mitsubishi Outlander PHEV.
Aðrar umfjallanir
Mercedes-Benz hefur tilkynnt um áform um að loka verksmiðju sinni í Hambach, Frakklandi, þar sem bílar með Smart-vörumerkinu eru nú...
Hann er 3,7 sekúndur úr kyrrstöðu upp í 100 km/klst. Það er gott. Hann er afturhjóladrifinn. Það er mikið gott. V10, já það er vel. Ég hef ekki komist í tæri við þennan bíl. Það er slæmt. Eiginlega afleitt. Samt veit ég að hann hljómar vel. Hér er meira að segja „tóndæmi“. En þetta sýnist mér einmitt vera svona bíll sem mann vantar. Sárlega.
Öspin er ein algengasta trjátegundin víða um landið og slútir gjarnan yfir bílastæði við húsin...
Vorið er að koma hjá þeim í Ameríku og það má meðal annars greina á því að Jeep er að senda frá sér nýjar „sumarútgáfur“...