Flottir kaggar í Njarðvíkinni
Í kvöld hittust meðlimir Fornbílaklúbbs Íslands á planinu hjá Tjarnargrilli í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ. Óhætt er að segja að íbúar hverfisins ásamt fjöldanum öllum af áhugafólki um gamla bíla hafi kunnað að meta þessa veislu.
Fjölmargir bílar á öllum aldri voru til sýnis og menn tilbúnir að spjalla og uppfræða og þá sérstaklega yngri kynslóðina sem var greinilega áhugasöm.
Sigurður Guðmundsson hjá Bílrúðuþjónustunni í Reykjanesbæ er mikill áhugamaður um bíla og á glæsilegan Plymouth Hemi 1969 árgerð.
Plymouth Hemi árgerð 1969.
Bílinn kom til landsins með varnarliðsmanni og var hann notaður sem fjölskyldubíll á vellinum um árabil. Eftir það var honum breytt og hann notaður í kvartmílunni.
Annar glæsilegur bíll sem við festum augun á er Ford Mustang Mach 1 árgerð 1971. Halldór Ármannsson flutti bílinn inn 2018. Þessi fákur er með 351 Cleveland vél með 4 hólfa tor, orginal eru þessir bílar með 2 hólfa tor. Bílnum var ekið til 1978 og lítur út eins og úr kassanum.
Mustanginn er allur orginal og einn sá flottasti sem undirritaður hefur séð af þessari gerð. Vélin malar eins og köttur undir stóru húddinu og krafturinn er raunverulegur.
Glæsilegur afturendi Mustang Mach 1.
Upphaflega var þessi bíll í Kaliforníu og hafði því ekki kynnst miklu votviðri né umhleypingum.
Mustanginn er eins og úr kassanum að innan sem utan.
Séð ofan í vélarrúmið á Mustang Mach 1 árgerð 1971.
Fornbílaklúbbur Íslands er mjög virkur félagsskapur og menn duglegir að sýna sig og bíla sína enda áhugi á gömlum bílum mikill hér á landi - ekki síst sögu þeirra.
Við látum myndirnar tala sínu máli
Aðrar umfjallanir
Átt þú skondna sögu af fyrsta bílnum þínum? Ég er nefnilega að safna og væri mjög þakklát ef lesendur vildu deila þeim. En þangað til þurfa erlendar sögur að duga og að sjálfsögðu eru það sögur frá Fiat-fólki þar sem fyrsti bíll undirritaðrar var þessi líka fín…flo… já þessi líka Fiat Uno ´87.
Fyrir fáeinum árum hitti ég hér á landi atvinnubílstjóra frá Rúmeníu. Samtalið var fremur stirðbusalegt í upphafi og velti ég fyrir mér hvað við gætum rætt um til að brjóta og bræða ísinn.
Greinilegt er að VW hefur ekki fengið nóg af crossover-sportjeppum. Þegar er VW með T-Cross og T-Roc, og nú bæta þeir þeim þriðja við!
Sumir segja að Ástralir virðist eiginlega alltaf vera í góðu skapi. Það er vonandi eitthvað til í því en þessa dagana eru þeir margir sérlega kátir vegna breytinga á skráningu fornbíla. Breytingin er ekki stór en hún skiptir samt miklu máli!