Meira sýnt af Opel Mokka
Vauxhall sem framleiðir samnefndar bifreiðar og undir merki Opel kynnti nýjan framenda Opel Mokka nýverið. Við sýndum einmitt nokkrar njósnamyndir af bílnum fyrir skömmu í þessari grein.
Engu að síður er þessi nýja hönnun Vauxhall/Opel ágætlega flott og þeir kalla hana Vizor.
Einnig rafdrifinn
Reiknað er með að nýr Opel Mokka verði um 134 hestöfl með 50kWh rafhlöðu og með drægni upp á 320 kílómetra. Hann verður einnig í boði með 1.2 lítra, þriggja strokka túrbó bensínvél og 1.5 lítra, fjögurra strokka dísel vél. Bíllinn er áætlaður sem 2021 módel.
Aðrar umfjallanir
Automotive News Europe fræðir okkur á því í dag að næsta kynslóð Mercedes-Benz S-Class fólksbílsins hefur greinilega...
„Ertu klár í bíltúr inn í eilífðina?“ Þetta er slagorð líkkistusmiðs nokkurs í Bandaríkjunum en hann er einn þeirra sem smíða óhefðbundnar kistur; Bílalíkkistur fyrir bílaáhugamenn.
Ford segist ætla að selja eingöngu rafbíla, fólksbíla sem aðeins nota rafmagn frá rafhlöðum í Evrópu árið 2030 sem hluta af nýrri vaxtarstefnu á svæðinu...