Mikið um að vera hjá bílaumboðunum
Það var mikið húllumhæ hjá bílaumboðunum í dag. Tvær frumsýningar fóru fram í dag – byltingakenndur Porsche Taycan, rafmagnsbíll og nýr Land Rover Defender voru kynntir til leiks.
Rafmagnaður kraftur
Það var margt um manninn hjá Porsche umboðinu, Bílabúð Benna í dag en þá varð langþráður draumur Porsche áhugamanna að veruleika. Beðið hefur verið eftir þessum glænýja byltingakennda bíl af mörgum aðdáendum þessara ofurbíla.
Þessi hvíti Porsche Taycan stóð á planinu hjá Porsche á Íslandi - Bílabúð Benna.
Taycan Turbo S, var afhjúpaður á bílasýningunni í Frankfurt. Sá rafbíll er heil 761 hestöfl og nær að skutlast í hundraðið á litlum 2,8 sekúndum. Til gamans má geta þess að hröðunin í 1,2g upptakinu (viðbragðinu) skákar þyngdaraflinu á fyrstu metrunum, en ef það er sett í annað samhengi, má segja að hraðinn sé meiri en fallhlífarstökkvari í frjálsu falli.
Og einn rauður inni í salnum.
Það er svo sem ekki nýtt að Porsche framkalli gæsahúð á ökumönnum, en í Taycan er hún rafmögnuð.
Á planinu hjá Bílabúð Benna var boðið upp á pylsur með öllu í góða veðrinu. Unnendur Porsche bíla létu sig ekki vanta í salinn.
Gænýr Land Rover Defender
Í næsta húsi nánast var einnig mikið um dýrðir. Hjá Landrover á Íslandi frumsýndu menn þar á bæ glænýjan Land Rover Defender. Sá bíll er ekki síður byltingakenndur en hann tekur við af hinum „hefðbundna” Land Rover Defender.
Nýr Landrover Defender var sýndur á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þessi var kynntur við veitingastaðinn Sjáland í Garðabæ.
Gróf hönnun en nútímaleg.
Menn voru áhugasamir um gripinn.
Fjölmargir lögðu leið sína í Nauthólsvík. Þessi var til sýnis við Nauthól í Reykjavík og vakti óskipta athygli. Spurningum ringdi yfir sölumenn í sólskininu.
Jeppinn var sýndur á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma þar sem mismunandi útbúnir Defenderar var stillt upp með ýmsum aukabúnaði í sínu náttúrulega umhverfi. Staðirnir voru; á toppi Úlfarsfells, í hesthúsahverfinu í Víðidal, við Nauthól í Fossvogi og við veitingastaðinn Sjáland í Garðabæ.
Jeep torfærutröll í öllum gerðum
Hjá Ísbandi í Mosfellsbæ sýndu menn nokkrar gerðir af breyttum Jeep og RAM. Sýndir voru óbreyttir og breyttir Jeep jeppar og RAM pallbílar. Jeep Grand Cherokee var m.a. sýndur með 33” og 35” breytingum og Jeep Wrangler Rubicon með 35”, 37” og 40” breytingum.
Glæsileg jeppasýning var haldin hjá Ísband í Mosfellsbæ.
Ísband með eigið þjónustuverkstæði
Þjónustuverkstæði ÍSBAND sérhæfir sig í breytingum á Jeep og RAM, en ÍSBAND er með umboð fyrir hin virtu amerísku breytingar fyrirtæki AEV, sem sérhæfir sig í breytingum á RAM og TeraFlex, sem sérhæfir sig í breytingum á Jeep.
Jeep Cherokee.
Gríðarlega öflugur framendi á þessum RAM.
Ísband rekur sitt eigið breytingaverkstæði.
Hér er fallega breyttur Jeep Grand Cherokee.
Aðrar umfjallanir
Leyfið mér að kynna Jimmy. Hann býr í Teslunni sinni og það hefur hann gert síðan 25. febrúar á þessu ári. Jimmy ætlar að búa í bílnum þangað til 25. febrúar 2022. Hann opnar líf sitt upp á gátt en fáir hafa sýnt því áhuga.
Nú fara bílauppboð á Íslandi og víðar öðruvísi fram en áður fyrr. Það eru hvorki hróp né köll innan úr mannþyrpingu og spennan á vefuppboði allt öðruvísi en í Vökuportinu fyrir 25 árum. Hér er spaugileg saga af frænkum sem buðu í bíl á uppboði og það uppboð fór sko ekki fram á vefnum.
Volvo gerir ráð fyrir að sportjeppar verði enn hærra hlutfall af sölu bílaframleiðandans á heimsvísu eftir að fyrirtækið bætir við gerð fyrir neðan XC40...
Það er ekkert skrýtið að þeir séu óðir í pallbíla þarna vestanhafs. Auglýsingarnar eru alveg ótrúlega heillandi, svona oftast nær og bílarnir í flestum tilvikum algjör tryllitæki. Hér er árgerð 2023 af Ram 2500 Rebel® auglýst og það er ekki laust við að maður verði dálítið spenntur. Stórvarasamar þessar bílaauglýsingar!