Verður þriðja verksmiðja Volvo í Evrópu?
Bílaframleiðandinn ætlar að auka sölu á heimsvísu úr 800.000 í 1,2 milljónir um miðjan áratuginn
Bílaframleiðandinn Volvo sem í hugum margra er enn sænskur, er í raun í meirihlutaeigu Zhejiang Geely Holding Group í Kína.
Fyrirtækið, sem er með aðsetur í Gautaborg, varð næststærsta skráning á markaði í Svíþjóð til þessa eftir útboð í lok október með verðmat upp á 18 milljarða dollara. Verksmiðjur Volvo eru nú tvær í Evrópu; önnur í Torslanda í Svíþjóð og hin í Gent í Belgíu.
Hér á árum áður var Volvo einnig með verksmiðju í Uddevalla, norðar á ströndinni fyrir ofan Gautaborg, en þeirri verksmiðju var lokað árið 2013 í hagræðingarskyni.
Volvo XC40 settur saman í verksmiðju bílaframleiðandans í Gent í Belgíu. Önnur evrópsk verksmiðja er í Torslanda í Svíþjóð (myndin efst í fréttinni).
„Við höfum þörf fyrir báðar verksmiðjurnar okkar í Evrópu... en við þurfum fleiri. Þess vegna viljum við byggja þriðju verksmiðjuna," sagði Annwall við Automobilwoche, sem er systurútgáfa Automotive News Europe.
Bílaframleiðandinn, sem nýlega kom á almennan hlutabréfamarkað, er í meirihlutaeigu Zhejiang Geely Holding Group í Kína og framleiðir nú um 800.000 bíla á ári í verksmiðjunum tveimur.
Volvo hefur sett sér sölumarkmið upp á 1,2 milljónir seldra bíla á ári og er ætlunin að ná því markmiði fyrir 2025 og verður helmingur framleiddra bíla rafknúinn. Volvo ætlar eingöngu að framleiða rafbíla fyrir árið 2030.
Aðrar umfjallanir
Þetta er spurning sem undirritaðri þykir nokkuð erfið og virkilega stór! Það er þó ekki að sjá að þeim eðalnáungum sem henni svöruðu árið 1970 hafi þótt þetta mjög snúin spurning. Svörin eru skemmtileg og vel rökstudd!
Við sögðum frá því hér á vefnum að von væri á nýrri útgáfu af Skoda Fabia með vorinu, og eina myndin sem þá var tiltæk var ein...
Einu sinni var okkur sögð sagan af nýju fötum keisarans, en samkvæmt því sem Terje Ringen skrifar á vef BilNorge þá er ekkert slíkt á ferðinni varðandi Citroën C5 Aircross...
Bílaframleiðendur og rafhlöðuframleiðendur keppast við að þróa nýjar rafhlöður rafknúinna bíla sem geta...