VW byrjar aftur að afhenda Golf eftir lagfæringu hugbúnaðar
FRANKFURT - Volkswagen er að hefja afhendingu á ný á nýja Golf eftir lagfæringu á hugbúnaði, sagði talsmaður VW á fimmtudag.
Talsmaður VW sagði við viðskiptablað Handelsblatt að villan hefði fundist. Bílarnir sem voru með þennan ágalla munu nú fá hugbúnaðaruppfærslu sem mun eyða villunni, að sögn blaðsins.
Áttunda kynslóð VW hefur fengið nýja eiginleika tengibúnaðar til að halda bílnum samkeppnishæfum.
Síðan frá síðastliðnu hausti hafa um 30.000 Golf verið framleiddar með hugbúnaðargallanum, aðallega fyrir Evrópumarkað, sagði Handelsblatt.
VW hefur gefið áttundu kynslóðinni Golf nýja tækni eins og fullkomlega stafrænan stjórnklefa til að halda bílnum aðlaðandi eftir því sem fleiri viðskiptavinir skipta yfir í „crossover2 eða „hatchback“. En háþróaða tæknin olli tæknilegum galla.
(Reuters)
Aðrar umfjallanir
Núverandi Nissan Micra verður skipt út fyrir nýja rafdrifna gerð sem deilir grunni með næsta Renault 5.
Þegar seinni heimsstyrjöldinni lauk hélt Willys-Overland fast í kjörorð framleiðslunnar á stríðsárunum, „sólin sest aldrei á jeppa...
Örskömmu áður en söngvarinn Freddie Mercury dó, fékk hann að sjá bílaatriði úr myndinni Wayne´s World sem enn átti eftir að frumsýna en í atriðinu eru fjórir gaurar að syngja hástöfum Queenlagið Bohemian Rhapsody í AMC Pacer 1976.
Timbraðir bílar og annað sem stingur í augun ratar stundum á uppboð, einkum í Vesturheimi. Þar byrjuðu menn á því að fara með parketið út úr húsum og klína því utan á bíla. Enginn veit af hverju. Held ég.