Nissan 400Z forsýndur fyrir frumsýninguna 2021
- Myndirnar sem sýndar voru á nýlegri kynningu hjá Nissan gefa vísbendingu um hönnun arftaka Nissan 370Z.
- Búist er við að þessi arftaki hins gamla 370Z verði kallaður 400Z og verði opinberaður á næstu 12 mánuðum.
- Engin yfirlýsing hefur verið gefin út um á hvaða mörkuðum nýja gerðin verður í boði.
Fyrsta sýn á útlitið á nýja „Z“ sportbílnum kom í ljós á nýlegri kynningu hjá Nissan.
Aðeins eru komnar fram “skuggamyndir af nýja bílnum – en gefa samt nokkra hugmynd um útlitið.
Nissan hefur forsýnt langþráðan arftaka 370Z sportbíls í kynningu þar sem gerð var grein fyrir framtíðarstefnu fyrirtækisins.
Opinber smáatriði um hinn dularfulla nýja bíl eru ekki ljós en sjá má að hann muni hafa hönnun sem þróast úr 370Z coupé og verður nýjasta viðbótin við Z sportbíla japanska vörumerkisins – sem hófst árið 1969 með því að koma fram með Datsun 240Z.
370Z er elsti bíllinn í núverandi framboði Nissan, en hann kom á markað í núverandi mynd árið 2008. Yfirmaður vöruþróunar, Ivan Espinosa, sagði systurútgáfu okkar Autocar á Englandi á bílasýningunni í Tókýó í fyrra að sportbíllinn - ásamt flaggskip GT-R - var „í hjarta Nissan“ og að fyrirtækið var „að skoða og vinna að“ arftaka.
Autocar reiknar með að nýi ‘Z’ sportbíllinn muni kallast 400Z og verði með tvískiptu túrbó 3,0 lítra V6 með meiri afli en núverandi bíll. Það er ekki líklegt að hann verði smíðaður sérsniðnum grunni miðað við tiltölulega lítið sölumagn og gæti í staðinn nýtt sér grunn frá Nissan systurmerkjunum Q50 og Q60.
Nissan lagði nýlega fram vörumerkisumsókn fyrir endurgerð á útgáfu af Z-merkinu og það setti af stað vangaveltur um að nýr sportbíll væri á leiðinni. Gamaldags útlit merkisins gaf í skyn að nýja gerðin muni fá innblástur í stíl frá sögulegum sportbílum Nissan, hugsanlega með beittum framenda eins og 240Z og áberandi bremsuljós innblásin af 300ZX.
Aðrar umfjallanir
„Drullaðu þér í burtu,“ sagði guttinn í „umferðinni“ á leikskólalóðinni. Manstu eftir þessu? Myndbandið sem hér er vísað til birtist árið 2005 og var liður í auglýsingaherferð Umferðarstofu. Markmið herferðarinnar var að vekja fólk til umhugsunar um eigin hegðun í umferðinni.
Í ágúst árið 1984 opnaði tívolí á Melavellinum í Reykjavík. Þar var bæði hægt að aka gókartbílum og klessubílum. Öll tæki voru keypt að utan, nema klessubílarnir sem fengnir voru á kaupleigu.
Margir bíleigendur eru með þann háttinn á að vera með vetrar- og sumardekk á felgum svo það er auðvelt að skipta um vor og haust...
Það eru ekki margir bílar gerðir til að fljúga. Og ekki allir ökumenn hæfir til að aka bílum. Hér er dæmi um bíl sem ekki er gerður til að fljúga og mann ökumann sem ætti kannski að fá sér flugvél.