„Drullaðu þér í burtu,“ sagði guttinn í „umferðinni“ á leikskólalóðinni. Manstu eftir þessu? Myndbandið sem hér er vísað til birtist árið 2005 og var liður í auglýsingaherferð Umferðarstofu. Markmið herferðarinnar var að vekja fólk til umhugsunar um eigin hegðun í umferðinni. Í auglýsingunum sáust börn hafa eftir hegðun sem þau öpuðu upp eftir foreldrunum.
Ekki voru allir hrifnir af framsetningu Umferðarstofu og bentu einhverjir á að drengurinn, síðar í meðfylgjandi myndbandi, væri ekki í barnabílstól.
Hvernig sem það nú var man undirrituð vel eftir auglýsingunum og í mínu tilviki komst boðskapurinn til skila. Ætli guttinn í myndbandinu sé ekki kominn með bílpróf í dag? Hann stóð sig alla vega með eindæmum vel í auglýsingunni, í hlutverki „orðljóta“ unga mannsins.
Aðrar umfjallanir
TOKYO - Nissan seinkar komu flaggskipsins Ariya, rafknúna sportjeppans á markað, og undirstrikar þá baráttu sem bílaframleiðendur standa frammi fyrir...
Ef til er uppskrift að heljarinnar bílveiki þá hlýtur hún að verða til á vegi sem þessum. Ég veit ekki hvernig þetta með bílveikina virkar nákvæmlega en á þessum fjallvegi í Kína myndi maður nú vera fljótur að hlamma sér í bílstjórasætið!
Nýbyrjað ár verður örugglega „ár rafbílanna“ – jafnt hér á landi og úti í honum stóra heimi...
Það má segja með sanni að Volkswagen hefur sótt fram á rafbílamarkaði og þar á bæ eru stórar hugmyndir í gangi varðandi framtíð...