Sænska Pólstjarnan sem varð kínversk

    • 2021 árgerð Polestar 3 á að vera sprækur sportjeppi með áhrifum frá Precept-hugmyndabílnum
    • Yfirmaður hönnunar vörumerkisins segir að komandi keppinautur Tesla Model X muni vera með áhrif naumhyggju í hönnun og skemmtilegra gangverki

Polestar er bifreiðamerki í sameiginlegri eigu Volvo Car Group og móðurfyrirtækis þess, Geely Auto Group í Hangzhou í Kína. Það er með höfuðstöðvar í Gautaborg í Svíþjóð og framleiðsla fer fram í Chengdu í Kína. Fyrirtækið þróar rafknúna sportlega bíla og býður upp á vélbúnaðaruppfærslur og hagræðingu vélarhugbúnaðar fyrir Volvo-bíla í gegnum tæknideild Polestar.

Hinn 25. febrúar 2020 afhjúpaði Polestar hugmyndabílinn Precept, sem á að verða grunnurinn að þessum nýja Polestar 3.

image

Hugmyndabíllinn Polestar Percept.

Lykilatriði þriðja bílsins frá Polestar verður bíll sem tekur mikinn innblástur í útliti frá nýlega afhjúpaða hugmyndabílnum Precept.

Forstöðumaður hönnunar bílsins, Max Missoni, sagði Autocar að þrátt fyrir að framleiðsluútgáfan af Precept hafi ekki verið staðfest mun það hafa áhrif á Polestar 3, sem búist er við að komi árið 2021.

image

Hugmyndabíllinn Polestar Percept – hannaður sem keppinautur við Tesla Model X.

„Hönnunarmál þess bíls er eitthvað sem þú getur og átt að búast við í framtíðarbílum okkar, byrjar á Polestar 3,“ sagði hann.

image

Hugmyndabíllinn Polestar Percept – þverstæð afturljósin gefa bílnum óvenjulegt yfirbragð.

Missoni benti enn frekar á að þessi þriðji bíll Polestar yrði fágaður og sléttur keppinautur Tesla Model X og bætti við: „Næsti bíll okkar verður aflmikill sportjeppi, Polestar 3, og mun bera nokkrar af þeim eiginleikum og hönnunarleiðum sem þú hefur séð í Precept-hugmyndabílnum“.

„Við viljum að bílarnir séu afreksbílar, ekki aðeins frá 0-100 km/klst en einnig bílar sem eru frábærir í akstri“, sagði Missoni. „Allir bílarnir okkar, sérstaklega með frammistöðupakkann, munu uppfylla nokkrar af þessum óskum.“

Um Polestar

Polestar nafnið er upprunnið frá STCC Polestar keppnisliðinu sem var á vegum Polestar Performance AB sem Volvo Cars eignaðist síðan í júlí 2015. Keppnisliðið breytti nafni sínu í Cyan Racing en hélt nánum tengslum bæði við Volvo og Geely, en síðar með áherslu á Lynk & Co , systurmerki Polestar.

Samkeppni við Tesla

Í júní 2017 tilkynnti Volvo að Polestar myndi byrja að framleiða hágæða afkastamikla rafmagnsbíla undir eigin nafni og merki, til að keppa við vörumerki eins og Tesla Motors. Polestar virkar einnig sem nýsköpunarstofa fyrir Volvo Car Group og þróar hönnun og tækni af meira á vettvangi tilrauna.

image

Polestar 1.

Fyrsti Polestar bíllinn var kynntur 17. október 2017: Polestar 1, lúxus 2 + 2 coupé innblásin af Volvo Concept Coupé sem kynntur var árið 2013, en þar er meðal annars eru áhrif frá hinum víðfræga Volvo P1800. Polestar 1 er með rafknúinn drifbúnað með samsettum afköstum 450 kW (600 hestöfl) og 1.000 Nm af togi, samsett með tveimur 80 kW (110 hestafla) mótorum að aftan. Bíllinn er með 34 kWh (46 hestafla) rafhlöðu og aksturssvið á bilinu 150 km í hreinni rafmagnsstillingu. Polestar 1 er smíðaður í nýrri, sérhannaðri Polestar framleiðslumiðstöð í Chengdu í Kína frá 2019, með framleiðslugetu allt að 500 á ári og er aðgengilegur í áskrift fremur en sölu.

image

Polestar 2.

Árið 2019 tilkynnti Polestar Polestar 2, meðalstóran rafhlöðuknúin bíl (BEV). Hann var afhjúpaður 27. febrúar 2019 í afhjúpun á netinu sem send var út frá höfuðstöðvum Polestar í Gautaborg í Svíþjóð. Í kjölfar þess var bíllinn síðan frumsýndur á bílasýningunni í Genf árið 2019. Upphafsáfanga Polestar vöruþróunarinnar verður síðan lokið með síðari komu stærri jeppa-stíl BEV, Polestar 3, eins og fkjallað var um hér að ofan.

Hugmyndabíllinn Precept

Hinn 25. febrúar 2020 afhjúpaði Polestar hugmyndabílinn Precept. Reiknað var með því að frumsýning yrði á bílasýningunni í Genf árið 2020, en sýningin var felld niður sem varúðarráðstöfun vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

(byggt á Autocar og wikipedia)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is