Gazebox
Átt þú ekki bílskúr eða mátt þú ekki eiga bílskúr? Það er afleitt hvort heldur sem er. Að eiga bíl en engan bílskúr getur verið dálítið eins og að eiga mat en engan ísskáp. Það eiginlega gengur ekki.
Gazebox minnir dálítið á brauðboxin sem til voru á mörgum heimilum hér áður fyrr.
Þetta er ítölsk hönnun og á vefsíðu fyrirtækins segir að boxið verji bílinn fyrir hinum ýmsu leiðindum: Kvikindum, fugladriti, andstyggilegum geislum sólar (fyrir þau okkar sem erum búin að gleyma hvað það er þá fylgir hér hlekkur á útskýringu orðabókar), snjókomu, hagli, regni og svo framvegis.
Það besta í kynningu framleiðandans á Gazeboxinu magnaða er orðalagið: „Það eina sem takmarkar notkunarmöguleikana er ímyndunaraflið.“ Auðvitað hafa fæstir ímyndunarafl sem er eins sturlað og íslenska veðrið þannig að já, þeir vita ekki alveg hvað þeir voru að segja þarna. En kannski þolir bílaboxið íslenskar veðurhamfarir.
Niður með hann!
Umfjöllun hér á síðunni um bíla geymda í hólfum neðanjarðar er nú kannski ekki til þess fallin að vekja áhuga á neðanjarðarbílalyftu en leyfum þessu þó að fylgja með.
Idealpark er ítalskt eins og Gazebox og það framleiðir lyftubílskúra (datt ekkert skárra orð í hug). Þetta hlýtur að vera fjandi dýrt því á myndum á vefsíðu fyrirtækisins eru ofursportbílar og svakaleg einbýlishús.
En þetta ætti að þola íslenskt rok. Spurning samt hvort bíllinn gæti ekki lokast niðri yfir vetrarmánuðina í miklum snjó? Neinei, það þarf ekkert að vera.
Bílahillan
Átt þú marga bíla en fá bílastæði? Þá er gott að geta skellt bílunum upp í hillu – eða öllu heldur; upp á hillu.
Myndir/Autostacker.com
Er mamma alltaf að skammast yfir því að þú gangir ekki frá leikföngunum? Haha! Hún hættir að kvarta þegar allt dótið er komið á sinn stað í hillunum. Autostacker býr til snjallhillur fyrir dótið manns.
Og að lokum er það frábær hugmynd; skúr sem þolir mikið snjófarg en…hann þarf sól.
Fleira um bílskúra og sniðug stæði:
Aðrar umfjallanir
Centoventi nafnið, sem þýðir "120" á ítölsku, vísar til 120 ára sögu Fiat vörumerkisins.
Fjölmargir bílar hafa vakið athygli gegnum tíðina en ekki hafa margir haft bein áhrif á framleiðslu annarra ökutækja. Hér eru tólf þeirra sem mörkuðu á einhvern hátt tímamót í sögunni. Eða ruddu brautina. Bílabrautina.
Jarðolíurisinn Ineos Group tekur höndum saman við Hyundai Motor í því skyni að veita bílum sem nota vetni sem eldsneyti þá uppörvun sem þeir þurfa til að verða almennari...
Íslendingar óku gjarnan eigin bílum á ferðalögum erlendis og gat það verið meiriháttar áskorun. Í Tímanum árið 1961 birtust ráðleggingar til þeirra sem ætluðu á flakk úti í hinum stóra heimi og það á sínum eigin bíl.