Kia útlistar stefnu sína í framleiðslu á rafbílum til langs tíma
Kóreski bílaframleiðandinn mun setja upp nýja verksmiðju fyrir rafknúna sérsmíðaða bíla („Purpose Built Vehicles“) árið 2026.
Kia hefur kynnt áætlanir um að setja upp nýja framleiðslustað fyrir nýtt framboð af sérsmíðuðum rafbílum, sem hluti af víðtækari verksviði til að koma á markað fjölda rafhlöðuknúinna farartækja fyrir 2030.
Gert er ráð fyrir að nýja verksmiðjan verði tilbúin í fyrsta lagi árið 2026 og í upphafi geti hún framleitt um 100.000 PBV-bíla á ári.
Mynd frá kynningu Kia á nýju rafbílunum miðvikudaginn 18. maí.
Fyrsta farartækið til að rúlla af framleiðslulínu nýju verksmiðjunnar verður farartæki í meðalstærð, sem nú er aðeins þekkt undir vinnuheitinu „SW“.
Hins vegar tilgreindi Kia þegar það útlistaði Plan S stefnu sína í mars 2022, að þetta nýja ökutæki yrði fáanlegt í úrvali yfirbygginga, sem myndi gera PBV kleift að gegna hlutverki sendiferðabíls eða farþegaskutlu.
Kia kynnti fyrir tveimur árum fyrirætlanir um framleiðslu á sendibílum og svokölluðum „van-bílum“ sem yrðu allir byggðir a sama grunni, sem Kia kallaði „hjólabrettið“ og sést hér að ofan.
Og svona litlu hugmyndir um væntanlegt framboð rafbíla út fyrir tveimur árum.
PBV áætlanir Kia ganga lengra en meðalstærð atvinnubílsins sem er væntanleg árið 2025. Með því að nota sömu „hjólabretta“ tæknina sem liggur til grundvallar SW, ætlar Kia að setja á markað úrval sérsmíðaðra rafbíla í ýmsum stærðum og gerðum.
Kia EV9 sem er væntanlegur árið 2023.
Þessar rafknúnu PBV-hugmyndir eru til viðbótar því umfangsmikla úrvali rafknúinna fólksbíla sem Kia ætlar að setja á markað á svipuðum tíma.
Til viðbótar við Kia EV6 rafknúna crossover sem nú er til sölu mun Kia setja 14 rafbíla á markað um allan heim árið 2027.
Þar af verða sjö þeirra eingöngu rafknúnir, eins og Kia EV9 - stóri sportjeppinn sem er væntanlegur árið 2023, með viðbót rafbíla sem koma úr gerðum með brunavél eins og nýrri annarri kynslóð Kia Niro EV.
(frétt á Auto Express og fleiri bílavefsíðum – myndir frá Kia)
Aðrar umfjallanir
Fyrir okkur sem erum frekar fjarri helstu bílamörkuðum þarf stundum að vera á vaktinni til að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast. Ég hafði séð að von væri á kynningu
„Street food“ er ekki bara tekinn upp á næsta plan heldur upp á næsta pall hjá honum Eleodoro Lopez. Hann flandrar um Los Angeles í Kaliforníu á pallbílnum sínum og malar gull. Og bakar pizzur.
Nissan hafði ætlað að hefja sölu á X-Trail í síðasta lagi á þessu ári, sagði fráfarandi yfirmaður vörumerkisins í Evrópu, Gianluca de Ficchy...
Við sögðum frá því fyrir nokkrum dögum að Skoda hefði sent frá sér teikningu sem gefur til kynna alveg nýtt útlit á Skoda Octavia sem verður...