Nissan GT-R50 Italdesign frumsýndur
- GT-R50 frá Italdesign aðeins framleiddur í 50 eintökum
- Er með Nissan GT-R's 3,8 lítra tvískipta túrbó V6 sem eftir endurbætur skilar 720 hestöflum
- Bílarnir koma til afhendingar snemma árs 2021
Ofursportbílinn GT-R50 frá Italdesign - samvinna Nissan og ítalska hönnunarhússins - hefur komið í ljós í framleiðsluútgáfu. GT-R50 var fyrst sýndur með frumgerð árið 2018 og fagnar 50 ára afmæli beggja, GT-R og Italdesign.
Aðeins 50 eintök smíðuð
Þessi nýi ofursportbíll, takmarkaður við aðeins 50 einingar, er smíðaður á grunni-Nismo útgáfu af flaggskipi Nissan og er verðlagður frá 990.000 € (154,7 milljónum ISK) áður en búið er að bæta aukabúnaði við. Italdesign segir að „verulegur fjöldi innborgana“ hafi þegar verið greiddar. Afgreiðsla hefst snemma á næsta ári.
Krafturinn kemur frá uppfærðri útgáfu af GT-R Nismo, 3,8 lítra V6, sem hefur verið stillt til að framleiða 720 hestöfl og 780 Nm togi - upp úr 600 hestöflum og 652 Nm í venjulegum GT-R.
Breytingarnar fela í sér viðbót á sérgerðum kappakstursforþjöppum og stærri millikæli, en sveifarás, stimplar, legur og útblásturskerfi hefur allt verið endurgert til að mæta auknu afli.
Átti að frumsýna bílinn í Genf
Italdesign hafði í hyggju að sýna framleiðsluspilabílinn á bílasýningunni í Genf fyrr á þessu ári en í kjölfar þess að atburðurinn var aflýstur var hann sýndur í fyrsta skipti í Tazio Nuvolari brautinni á Ítalíu, þar sem fyrirtækið framkvæmir kraftmiklar prófanir sem nauðsynlegar eru til ljúka gerðarviðurkenningu ökutækisins.
Forstjóri Italdesign, Jörg Astalosch, sagði: „Þetta er mjög sérstakur dagur eftir afar erfiðar vikur fyrir alla.
Eftir að við urðum að afsala okkur heimsfrumsýningunni á bílasýningunni í Genf og eftir að hluta framleiðslu okkar vegna COVID-19 var hætt, komum við aftur snemma í maí í 100 prósentum til starfa og getum staðfest afhendingu fyrstu bíla milli loka þessa ára og byrjun árs 2021, eins og til stóð. “
Aðrar umfjallanir
Á góðviðris fimmtudagskvöldum mæta flottir bílar af öllum gerðum og stærðum, þar sem eigendur þeirra deila bæði sögum og njóta góðs félagsskapar...
Ein af uppáhalds bílakvikmyndum greinarhöfundar er myndin um andsetna Plymouth-bifreið af árgerð 1958. Allir sannir áhugamenn um gamla bíla hafa vonandi séð...
Þegar eitthvað sérstakt stendur til í heimi viðskipta, eða þegar til dæmis „litaðir“ föstudagar nálgast þá er oft brugðið á leik, og það gerði bílaumboðið Askja með miðnæturopnun.
Örskömmu áður en söngvarinn Freddie Mercury dó, fékk hann að sjá bílaatriði úr myndinni Wayne´s World sem enn átti eftir að frumsýna en í atriðinu eru fjórir gaurar að syngja hástöfum Queenlagið Bohemian Rhapsody í AMC Pacer 1976.