Volvo finnur loksins raddstýringarkerfi sem skilur sænsku
Autocar segir okkur í dag að Volvo telji að nýja upplýsinga og afþreyingarkerfið frá Google muni auðvelda ökumönnum í heimalandi sínu raddstýringu - vegna þess hve vel Google Assistant skilur sænskan framburð og hreim.
Anna Arasa Gaspar, sem vinnur hjá forritateymi Volvo, sagði mörg raddstýrikerfi glíma við erfiðan framburð og tungumál en „reiknirit Google eru frábær til að læra.
Það getur jafnvel skilið hreiminn minn, sem venjulega er vandamál“.
Aðrar umfjallanir
Skoda Octavia var í fimm efstu sætunum yfir selda bíla í 13 Evrópulöndum fyrstu 11 mánuði ársins og toppaði Renault Clio á fjórum mörkuðum og Volkswagen Golf á fimm...
Chevrolet Impala var kynntur til leiks árið 1958. Þetta var kraftmikill kaggi og ákaflega vinsæll. Menntaskólanemar voru margir ánægðir með plássið aftur í.
Einhver úti í hinum stóra heimi hefur tekið sig til og gert alla núverandi keppendur í Formúlu 1 að bústnum vörubílstjórum. Útkoman er vægast sagt sprenghlægileg og fer nú eins og eldur í sinu um veraldarvefinn. Það er ómögulegt að sleppa þessu þótt vitlaust sé!
Eftirspurn eftir rafknúnum bílum jókst um tæp 57% og sala tengitvinnbíla um 43% á þriðja ársfjórðungi innan ESB.