BMW X2 mun fá uppfært útlit – tengitvinngerð væntanleg
- X2 fær útlitsbreytingar í takt við andlitslyftingu X1
- Væntanlega minni háttar breytingar á innréttingu og meiri tækni
- Mögulega frumsýndur síðar á þessu ári
Lítið er um fréttir af nýjum bílum þessa dagana, en ýmsar bílavefsíður hafa birt fréttir um að BMW X2 muni fá endurnýjun núna á miðju aldursskeiði sínu og hafa birt njósnamyndir af bílnum þessu til staðfestingar. Bíllinn mun fá uppfærslu á útlit og uppfærða tækni og það mun endurspegla nýlegar breytingar á BMW X1.
Reiknað er með bílnum í sölu á næsta ári
Í umfjöllun á þessum erlendu vefsíðum er reiknað með að sjá nýja X2 í sýningarsölum á næsta ári. X2 er coupé-útgáfa af X1 og er minnsti jeppi BMW sem er í samkeppni við Mercedes GLA, Audi Q2, Volvo XC40 og MINI Countryman.
Minni breytingar í innanrými en möguleiki á meiri tækni
Stóru fréttirnar samkvæmt þessu vefmiðlum varðandi innanrýmið eru að iDrive upplýsinga- og afþreyingarkerfið er líklega með virkni á snertiskjá í fyrsta skipti. Þar fyrir utan er talið að BMW takmarki allar breytingar inni í bílnum við ný áklæði og frágang en möguleiki er á að meiri öryggisbúnaður og aðstoðarkerfi ökumanna verði fáanleg.
Aðrar umfjallanir
536 hestafla Mercedes G63 AMG 6x6 væri góður kostur á grófum óbrúuðum hálendisslóðum, eða í það minnsta í huganum, eftir nýlega ferðum vegaslóða og óbrúaðar ár að fjallabaki og um Mælifellssand á dögunum. Við vorum á 35 tommu og vel búnum LandCruiser, en þá kom upp hugsunin hjá þeim sem þetta skrifar hver væri hugsanlega „óskabíllinn“ á svona ferðalagi. Eftir smá umhugsun var svarið einfalt: Mercedes G63 AMG 6x6
Einu sinni var okkur sögð sagan af nýju fötum keisarans, en samkvæmt því sem Terje Ringen skrifar á vef BilNorge þá er ekkert slíkt á ferðinni varðandi Citroën C5 Aircross...
Mercedes-Benz hefur gefið til kynna að þeir muni fækka minni gerðum bíla sem þeir bjóði upp á í framboði næstu kynslóðar...
Útvíkkun framboðs Volvo bendir til þess að fyrirtækið sé að þróa flota rennilegra bíla og með loftfræðilegri áherslu...