Sagt að Audi sé með rafmagnsbíl í A5-stærð í pípunum
Ef lesendur okkar hafa haldið að rafmagnstæknin, sem fengin var með þróun Porsche Taycan, væri bundin við Porsche og ekki einhver önnur vörumerki Volkswagen Group, þá hafa þeir ekki fylgst mjög vel með rafvæðingarstefnu fyrirtækisins.
Audi er að þróa rafmagnsbíl í stærð A5 af gerðinni „Sportback“ sem mun bjóða upp á fjórar hurðir og e-tron GT-útlit, eins og sést í þessari teiknuðu mynd sem Autoweek birti á dögunum.
Porsche og Audi eru að vinna að nýju „Premium Platform Electric“ eða „aðalgrunni rafbíla“ sem mun renna stoðum undir röð rafknúinna ökutækja frá nokkrum merkjum VW Group, þar af einum Audi A5 rafmagnsfólksbí, að því er kemur fram í fréttum á Automotive News og Autocar.
Þessi grunnur rafbíla verður afturhjóladrifinn í grunnformi, með aðeins einum rafmótor staðsettum á afturás, en varðandi kröfur Audi um fjórhjóladrif mun hann vera með annan mótor að framan. Rafmagnsgrunnurinn verður nægjanlega sveigjanlegur til að nota fyrir stóra fólksbíla og jeppa, auk fjölda rafhlöðustærða, og lengsta akstursvið á rafhlöðu er 485 kílómetrar, segir í frétt á Autocar. Þessi grunnur mun einnig vera með 800V kerfi sem getur tekið við 350 kW hleðslu - það er mjög hröð hleðsla.
Meðalstór fólksbifreið væri eitt af rökréttu næstu skrefunum miðað við þá sterku eftirspurn sem Tesla hefur upplifað með Model 3 ef aftur sé vísað í þann samanburð.
Reiknað er með að þessi miðlungsstóra gerð „Sportback“, ef hún er samþykkt til framleiðslu, muni leiða af sér ýmsar gerðir sem fela í sér „crossover“-bíla, stationbíla, „Sportback“-gerðir, fólksbíla og sportjeppa. En áður en rafbílarnir á þessum grunni koma á markað, sem verða snemma á næsta áratug, munu tvær aðrar gerðir rafbíla frá Audi koma á markað fyrst: Audi E-tron GT - útgáfa af Porsche Taycan - og e-tron Sportback sem mun vera meira coupé-lík útgáfa af e-tron sportjeppanum sem nú er á markaði.
Aðrar umfjallanir
Nýr fjölnotabíll sem byggður er á sendibíl er við það að bætast í hópinn hjá Mercedes. Nýliðinn, sem heitir T-Class, verður frumsýndur 26. apríl...
Margir sem eru komnir á miðjan aldur vita eflaust hver George S. Patton var. En fyrir hina þá var Patton hershöfðingi í her...
Myndir af annarri gerðinni í mikilvægri uppbyggingu VW hafa komið fram úr skjölum sem lögð voru fyrir kínversk stjórnvöld...
Staðfest er að Ineos Grenadier verði vetnisknúinn með tækni frá Hyundai. Prófanir hefjast í lok ársins 2022