Svipmyndir frá frumsýningum helgarinnar
Bílabúð Benna: Frumsýndu SsangYong REXTON sem er jeppi ársins hjá 4x4 Magazine
Það var margt um manninn hjá Bílabúð Benna við Krókhálsinn á laugardaginn. Þar mátti sjá þennan nýja jeppa í nokkrum útgáfum, þar á meðal einn sem búið var að setja á stærri hjólbarða. Greinilega mátti heyra það á viðstöddum að þeim leist vel á þennan vel búna jeppa.
BL frumsýndu nýjan BMW X5 ásamt X4
Það voru einnig margir gestir hjá BL á Sævarhöfða þar sem verið var að frumsýna nýjan BMW X5 sem hefur verið endurhannaður frá grunni. Meðal nýrra atriða er ný hönnun á farangursrými. Betri aksturseiginleikar með loftfjöðrun, endurbættur ljósabúnaður og nýjunar í rafeinda- og samskiptatækni.
Brimborg frumsýndi nýjan lúxusbíl - Peugeot 508
Brimborg frumsýndi nýjan Peugeot 508 á laugardaginn í sýningarsal Peugeot við Bíldshöfðann.
Suzuki – Vitara með nýjum vélum og tæknibúnaði
Vitara kom fyrst á markað fyrir meira en 25 árum. Nú er hann kynntur sem fjórða kynslóð og enn sem fyrr sem hreinræktaður jeppi sem uppfyllir nútímakröfur um sparneytni, akstursgetu og þægindi. Um helgina mátti sjá nýjustu gerð Vitara með nýjum vélbúnaði og endurbættum tæknibúnaði í sýningarsalnum í Skeifunni.
Aðrar umfjallanir
Hér á Spáni eru fornbílar og glæsivagnar mjög í hávegum hafðir og starfræktir eru bílaklúbbar þar sem eigendur slíkar bíla hittast reglulega, sýna sig og sýna bíla...
Mikill og hátíðlegur hópakstur opinna Ferrari sportbíla hófst formlega í fyrradag, 27. júní, í Maranella á Ítalíu. Um 80 Ferrari Monza SP1 og SP2 taka þátt í Ferrari Cavalcade en ekið er um Ítalíu, Frakkland og Mónakó. Þetta byrjaði samt á óheppilegu atviki.
Volkswagen Group mun fara fram úr Tesla og verða stærsti framleiðandi rafknúinna ökutækja á næstu fimm árum þar sem mikil fjárfesting VW...
Breytingafyrirtækið Brabus er þekkt fyrir að bæta góðum kostum víð ýmsa bíla frá Mercedes-Benz farartæki. Þetta árið hafa komið fram áhugaverðar breytingar...