Reynsluakstur: Volvo XC40 PHEV, árgerð 2020
Umboð: Brimborg

Hönnun, aksturseiginleikar, tæknibúnaður
Djúpt á sumum stillingum í stjórnkerfi

Þægindi á þægindi ofan

Volvo XC40 er nýjasta trompið úr smiðju Volvo Cars.  Í einu orði sagt: Frábær á alla vegu.  Þessi flotti bíll virkar mun stærri en hann í rauninni er. Þægileg sæti, einföld en vönduð innrétting með frábæru margmiðlunarkerfi.  

Það sem kom mest á óvart að það fer vel um stóran blaðamann með nokkur aukakíló í ökumannssætinu.  Það heldur vel um mann og fótaplássið er nægt.  Aðgengið er líka gott og maður sest inn í þenna bíl en ekki ofan í hann. Það er alveg satt, hann er minni en XC60 en maður bara hreinlega tekur varla eftir því – allavega ekki við almenn not í borgarakstri.

image

Sérlega falleg hönnun á Volvo XC40

Ríkulegur staðalbúnaður

Volvo XC40 kemur í þremur útgáfum Momentum, Inscription og R-Design.  Grunnútgáfan, sem við prófuðum lítur ekki út fyrir að vera sú „ódýrasta“ því staðalbúnaðurinn er ríkulegur.  Reynsluakstursbíllinn skilaði heilum 262 hestöflum sem verða til við framleiðslu orku úr tveimur aflgjöfum bílsins, rafmagnsmótor og bensínvél.

Drægni á rafmagni er uppgefin um 51-56 kílómetrar.  Volvo Momentum T5 bíllinn uppfyllir kröfur um CO2 gildi til lækkunar opinberra gjalda og er án vörugjalda og ber lægri virðisaukaskatt.

Munur milli gerða bílanna er einungis falinn í mismunandi búnaði.  Momentum bíllinn er ríkulega búinn staðalbúnaði svo sem SIPS árekstrarhliðarvörn, WHIPS bakhnykksvörn, veglínuskynjara, nálægðaskynjara að aftan, Webasto vélahitara með tímastilli, tauáklæði LED aðalljósum, LED lýsingu í innréttingu, upphitanlegu leðurstýri, Volvo high performance hljóðkerfi og rafmagnshandbremsu svo eitthvað sé nefnt.

image

Stafrænt mælaborð með íslandskorti milli upplýsingamæla.

image

Öryggi og aftur öryggi

Inscription bíllinn kemur að auki með leðurinnréttingu, 19 tommu álfelgum, leiðsögukerfi með Íslandskorti, Apple Carplay og Android Auto og rafdrifinni opnun á afturhlera. Bíllinn er stútfullur af öryggisbúnaði ættuðum úr smiðju Volvo.

R-design útfærslan er mjög sportleg og er komin með 19 tommu R-design álfelgur, sportfjöðrun, sportsæti ásamt allskyns flottum aukahlutum utan á bílinn eins og R-design afturstuðara með Glossy Black listum, R-design grilli og svo mætti lengi telja.

image

Glæsileg innrétting, þægileg sæti sem halda vel við bak og fætur.

image

Skýr bakkmyndavél á 9 tommu skjá. Bílinn er stútfullur af öryggisbúnaði allskonar.

Frábær akstursbíll

Eftirtektarvert er hversu gott er að aka Volvo XC40. Bíllinn er sérlega lipur og stýrið létt en þó ekki of létt.  Stýrið er nákvæmt og aksturseiginleikar skemmtilegir í snjó og ófærð.  Sætin halda vel utan um ökumann og farþega og nægt pláss er bæði frammí og afturí.  Sætin eru nýstárleg að því leitinu að bökin í framsætunum eru talsvert þunn og því næst meira pláss afturí.

image

Rúmgott farangursrými.

Sjö þrepa sjálfskiptingin vinnur sína vinnu án þess að ökumaðurinn þurfi að hafa einhverjar áhyggjur, þú finnur vart fyrir skiptingunni og það sem meira er bíllinn er nánast hljóðlaus.  9 tommu Volvo margmiðlunarskjárinn er einn af okkar uppáhalds og er næmur og snöggur að svara.  Svo getur maður fylgst með Íslandskortinu í mælaborðinu sjálfu á milli stafræns hraða- og snúningsmælis.

Það þýðir ekkert að ætla að hjakka svona tækniundri út úr snjóskafli. Það fyrsta sem þarf að gera er að slökkva á spólvörn bílsins og moka svo frá hjólum eins og hægt er. Við reyndar fundum ekki út úr því hvar þá stillingu var að finna í stjórnkerfi bílsins fyrr en við vorum búnir að ná okkur út úr skaflinum á gamla mátann – með því að ýta.  

Við hreinlega gleymdum okkur í „jeppaleik“ frekar en að gúggla okkur í gegnum stjórnkerfi bílsins.

image

Volvo hönnun.

image

Volvo T5, tengitvinn. Fer um 51-56 km. á hleðslunni.

Kraftur í kögglum

Upplifun í akstri á Volvo XC40 var frábær.  Að okkar mati er þetta mjög vel búinn sportjeppi sem fáanlegur er í fjölda útfærslna.  Hægt er að fá bílinn með 150 hestafla díselvél og með aldrifi.  

Mjúkur en þéttur, mikil akstursþægindi og nægilegt pláss eru helstu kostir þessa glæsilega nýja Volvo tengtvinns bíls. Og ekki spillir verðið fyrir – mjög hagstætt verð er á bílnum.

Helstu mál:

Plúsar: Hönnun, aksturseiginleikar, tæknibúnaður

L/B/H: 4.425/2.034/1.652mm

Útfærsla
Drif
Girkassi
Eldsneyti
Tog-Hö.
Stærð rafhlöðu
Drægni allt að
VERÐ FRÁ.
P6 Recharge Plus
Framhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn330 - 23169 kWh424 km
P6 Recharge Ultimate
Framhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn330 - 23169 kWh424 km
P8 Recharge Plus
Fjórhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn660 - 40878 kWh437 km
P8 Recharge Ultimate
Fjórhjóladrif Sjálfskipting Rafmagn660 - 40878 kWh437 km
* Eydsla bL akstur ** 0-100 km/klst
Gert með fyrirvara um prentvillur. Brimborg áskilur sér rétt til breytinga án fyrirvara á verði og búnaði. Vinsamlegast athugið að búnaður á mynd getur verið ólíkur búnaði bílsins.
Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is