Reynsluakstur: Jaguar XE, árgerð 2019
Umboð: Jaguar Ísland

Sterkur karakter og kröftugur

Það færist í vöxt að menn velji sér frekar sportjeppa fram yfir kröftuga og skemmtilega bíla sem gefa manni mikla akstursánægju. Þegar að maður fær í hendurnar jafn öflugan og skemmtilegan bíl eins og Jaguar XE, er erfitt að skilja af hverju einhver myndi velja sportjeppa fram yfir hann.

image

Jaguarmenn hafa ætíð verið þekktir fyrir að gefa almenningi bíla sem frábært er að aka. Rásfastir með góðu gripi og vanalega örlítið fleiri hestöfl en íslenskt vegakerfi bíður uppá að nota. Það ætti samt ekki að stoppa nokkurn mann í því að hið minnsta íhuga að fá sér almennilegan akstursbíl sem veitir þér ánægju af því að fara á milli staða.

Allt fyrir ökumanninn

Það eru til þrjár týpur af bílum. Bílar sem þú sest niður í, bílar sem þú sest inni í og svo bílar sem þú sest upp í. Jaguar XE er bíll sem þú sest niður í og kemur þér vel fyrir undir stýri. Undir stýri á XE finnur þú strax að þar sé gott að vera og eitthvað virkilega spennandi að fara að gerast. Jaguar XE er bíll sem þú næstum því klæðir þig í. Að spenna öryggisbeltið er örlítið eins og þú sért að setja á þig skó. Sportsætin faðma líkama þinn og þér líður eins og verið sé að halda á þér í stórum lófa, líkt og afar gera við barnabörnin sín þegar þeir lyfta þeim til lofts.

image

Mælaborðið felur vel kraftinn sem leynist fyrir framan það. Mælarnir geta verið lýstir upp rauðir, hvítir eða bláir, allt eftir hvaða aksturskerfi er valið. Best er þó að þegar sest er inní bílinn blikkar Start Stopp takkinn líkt og um hjartslátt væri að ræða.

Öflug hönnun í takt við fjölskylduna

Hönnun XE sver sig vel í Jaguar ættartréð. Bíllinn sem ég hafði til prufu var R-Sport útfærsla og með henni kemur öflugur og grimmur framendi. Bíllinn var á svörtum felgum og allt það sem venjulega er krómað var svart á prufubílnum. Meira að segja loftopið sem er á framhliðum bílsins er svart. Dökkar rúðurnar og dökk sóllúgan gefa bílnum svo enn sterkara útlit. Við þetta bætast breiðari hliðar undir hurðum og fram- og afturstuðari með sportlegum línum.

image

Grimm framljósin og sterkur hliðarsvipur Jaguar XE gefur honum gífurlega fallegt útlit. Hjólaskálarnar standa svo örlítið út og gefa stórum 19 tommu dekkjunum nægt pláss. Bakvið þau hanga aurhlífar til að verja bílinn gegn lélegu íslensku malbiki þar sem smásteinar losna upp úr.

Bara þú og vegurinn

Að aka Jaguar XE er upplifun. Í gegnum stýrið ertu vel tengdur veginum og skiptir bíllinn um stefnu alveg jafn hratt og stýrinu er snúið. Tenging bílstjórans við veginn í gegnum bílinn er einstök og hjálpar það mikið hvernig bíllinn liggur á vegi. Þyngdarpunktur hans er mjög lágur sem gerir það að verkum að hann haggast ekki í beygjum. Fjórhjóladrifskerfið, sem var í reynsluakstursbílnum, sendir meirihlutann af togi vélarinnar til afturhjólanna. Það finnur þú vel þegar að komið er út úr hringtorgum til dæmis og gefur aftur inn. Hröðunin þá fer mest í gegnum afturhjólin og þér líður sem bíllinn svífi áfram staðfastur í stefnu sinni því framhjólin geta enn einbeitt sér að því að stýra. Þetta finnst líka þegar þú ekur af stað á ljósum. Ekkert tog kemur þá í stýrið til hægri eða vinstri.

image

Vélin í prufubílnum var 2.5 lítra og skilaði hún 250 hestöflum. Togsvið hennar var breitt og mjög skemmtilegt og hljómaði hún líkt og sinfóníuhljómsveit að spila óperu, þar sem fluttur væri lofsöngur til þeirra sem veitt hefðu henni malbik til að aka á.

Og já, praktískur líka

Það er ekki bara frábær akstursupplifun og geggjuð vél sem þú færð í pakkanum með Jaguar XE. Þar færðu líka hentugan bíl til daglegra nota. Á milli framsætanna eru stórir glasahaldarar ásamt góðu geymsluhólfi. Fyrir framan farþegann er hanskahólf og í hurðum eru geymsluhólf. Þau geymsluhólf eru með mjúku teppi í botninum til að koma í veg fyrir skrölthljóð ef þú geymir eitthvað þar. Plássið í aftursætunum er líka gott. Þar er nóg fótapláss og fínt höfuðrými. Hurðirnar opnast líka mjög vel og hægt er að koma fyrir barnabílstól þar líka, enda eru þar ISIOFIX festingar.

image

Hurðirnar á Jaguar XE opnast vel fyrir gott aðgengi. Þær eru líka furðulega léttar enda er bíllinn allur búinn til úr áli.

Meira að segja skottið er vel nothæft. Í það passar golfsett af meðalstærð og undir gólfinu má finna varadekk.

image

Skottið á Jaguar XE er til fyrirmyndar. Efst í skottinu eru handföng til að fella niður aftursætin og þarf þá ekki að ganga hring til þess.

Lokaorð

Jaguar XE afhendir þér í einum pakka allt sem að sportlegur fólksbíll getur veitt þér. Frábærir aksturseiginleikar og sportlegt útlit sameinast til að veita þér upplifun í hvert skipti sem þú ekur á milli staða. Það að fólk færist meira og meira í áttina að eignast litla jepplinga í staðinn fyrir frábæra bíla eins og Jaguar XE er óskiljanlegt. Ef þig langar í bifreið sem býður uppá eitthvað öðruvísi en bara lítið farartæki til að koma þér frá A til B þá er Jaguar XE hannaður fyrir þig. Sterkur karakter sem veitir þér ánægju í hvert skipti sem þú sest undir stýri. Ég mæli með Jaguar XE fyrir alla þá sem sækjast eftir bifreið sem veitir þeim ánægju og hamingju í hvert sinn sem þeir aka honum.

Ef maki þinn segir nei bentu honum þá á tvennt: Í fyrsta lagi þá er hann fjóhjóladrifinn og í öðru lagi þá átti Halldór Laxness Jaguar um árabil.

Þú þarft hinsvegar ekki að vinna Nóbelsverðlaun til að fatta það að Jaguar XE eru frábær kaup.

image
Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is