Framúrskarandi tækni
Við hjá Bílabloggi tókum nýverið splunkunýjan Tesla Model Y í reynsluakstur. Það hefur verið ansi blautt í haust og ekki kannski of margir dagar til að skreppa í góðan reynsluakstur á flottum bíl.
Tesla Model Y kemst um 507 km. á hleðslunni skv. WLTP staðlinum. Veður ásamt aksturshegðun hefur talsverð áhrif á drægni.
Bara venjulegur bíll?
Já og nokk meira en það. Við sögðum frá því í sumar þegar við prófuðum Tesla Model 3 að þar væri á ferð kappakstursfjölskyldubíll og það eru orð að sönnu. Tesla Model Y er síðan nokkurskonar framlenging á þörfum þeirra sem vilja rúmgóðan ferðabíl með því saman og þristurinn býður uppá.
Tesla er í rauninni ekkert öðruvísi, betri eða verri bifreið en flestir samkeppnisaðilar eru að framleiða.
Hönnun, efnisval, samsetning og aksturseiginleikar eru á pari við marga aðra rafmagnsbíla í dag. Það er hins vegar tæknistig bílsins sem hefur skotið samkeppnisaðilum Teslunnar ref fyrir rass.
Kraftmikill og rúmgóður
Við opnun farangursrýmisins er eins og maður horfi inn í lítinn sendibíl. Gólfflötur farangursrýmisins er um fermeter að stærð og með sætin felld niður er plássið um tvö þúsund lítrar – sagt og skrifað! Svo eru allskyns hólf og hirslur í bílnum – bæði fram í og aftur í.
Maður hugsaði til Indiana Jones þegar maður lyfti spjaldinu í skottinu upp og sá „leynihólfin“.
Upptak bílsins er nægilegt – ekki fleiri orð um það. Ef þú þarft styttri tíma en fimm sekúndur í 100 kílómetra á klukkustund kemur Tesla Model Y Performance næsta sumar – þá geturðu farið þetta á rétt rúmum þremur sekúndum.
Þegar þú velur litinn á Tesluna þína kosta þeir mismikið. Hvítur er grunnlitur og er innifalinn í verði bílsins.
Auðveldur
Maður hefur heyrt nokkur svona komment „er ekki ægilega mikið vesen að læra á allt þetta tölvudót?“. Þegar þú gengur að bílnum með aðgangskortið eða snjallsímann opnar þú án vandræða með því að taka í hurðarhún, ekki ólíkt og á flestum bílum í dag.
Skjáinn höfum við margoft heyrt talað um. Á honum sérðu allt sem þú þarft til að haga akstrinum á sem öruggastan máta.
Þar sérðu afstöðu bílsins í umferðinni, hann skynjar umhverfið í kringum sig og sýnir þér niðurstöðuna á skjánum. Ef þú vilt sjá meira, getur þú kveikt á myndavélum bílsins sem sýna þér til hliðar við bílinn, aftan við hann og fram fyrir hann ef þurfa þykir.
Myndavélakerfi Tesla er tengt skynjurum. Ef til dæmis ekið er utan í kyrrstæða Teslu eru miklir möguleikar á að hún taki sjálf mynd af sökudólginum.
Öflugir sjálfstæðir mótorar
Tesla Model Y er með drifi á öllum hjólum. Bíllinn er búinn tveimur öflugum rafmótorum sem stýra snúningsátaki með stafrænum hætti til fram- og afturhjóla. Þú finnur þegar þú ekur bílnum hversu stýrið er nákvæmt, hann steinliggur og hreyfist lítið sem ekkert í beygjum.
Skjárinn er stór og kýrskýr ásamt því að vera mjög snertinæmur. Hann svarar strax og engin töf.
Pláss fyrir farþega og...
Aftur í er plássið með því betra sem við höfum séð. Framsætin eru reyndar svolítið há og skyggja eilítið á útsýni farþega aftur í, gólfið er slétt þannig að það fer ágætlega um fimm fullvaxna aftur í. Frammí fer ákaflega vel um farþega og ökumann og hægt að stilla sætin á fjölmarga vegu með rafmagnsstýringu.
Hreinar línur. Efnisval er þokkalegt og hefur batnað með árunum.
Rými er það sem fyrst kemur upp í hugann þegar maður tyllir sér í aftursætið.
Plássið í farangrusrýminu er á við í litlum sendibíl.
Rafhlaðan
Hún er ekki nema 75 kWst. Uppgefin drægni skv. WLTP staðlinum er 507 kílómetrar. Hægt er að hlaða um 240 km. í Supercharger stöð Tesla hringinn í kringum landið á korteri.
Hlerinn opnast mjög vel og er rafdrifinn. Gólfið er síðan slétt við stuðarann en töluvert geymslupláss í „leynihólfum“ neðar í skottinu.
Ef við skoðum þetta út frá heimilisnotkun getum við ef til vill litið á dæmið svona: Hjón með tvö börn sem búa í Reykjanesbæ eiga splunkunýjan Tesla Model Y. Þau hlaða hann heima í gegnum 11 kWst. hleðslustöð og fylla bílinn alltaf yfir nótt.
Hurðir opnast vel og þú sest beint inn í bíinn - ekki ofan í hann.
Smellpassar
Tesla Model Y er svo sannarlega ferðabíll. Fjórhjóladrifið, hæð undir lægsta punkt, Supercharger hleðslunetið og plássið í bílnum gerir bílinn að einum af betri kostunum í rafbílaflórunni á markaðnum í dag.
Tesla Model Y á 20 tommu svörtum álfelgum. Hæðin undir lægsta punkt er 17 sm.
Helstu tölur:
Verð frá 7.904.579 kr. skv. upplýsingum á vef Tesla 26.10.2021.
Rafhlaða: 75 kWh.
Dráttargeta: 1.600 kg.
Hæð undir lægst punkt: 17 sm.
Drægni: 507 km.
0-100 km á klst. 5 sek.
Farangursgeymsla: 2.158 lítrar að hámarki.
CO2: 0 g/km.
Þyngd: 2.003 kg.
L/B/H: 4750/1920/1623
Útfærsla | Drif | Girkassi | Eldsneyti | Tog-Hö. | Stærð rafhlöðu | Drægni allt að | VERÐ FRÁ. | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Staðalbúnaður
| Afturhjóladrif | Sjálfskipting | Rafmagn | 350 - 204 | 50 kWh | 455 km | ||
Long Range
| Fjórhjóladrif | Sjálfskipting | Rafmagn | 527 - 351 | 75 kWh | 533 km | ||
Performance
| Fjórhjóladrif | Sjálfskipting | Rafmagn | 639 - 462 | 75 kWh | 514 km |
Aðrar umfjallanir
Það fer ekki á milli mála að bylgja rafbíla er skollin á – jafnt hér á landi og hjá nágrönnum okkar. Æ fleiri bílar eru að birtast á markaðnum sem nota aðeins rafmagn...
Bílnum.is gafst kostur á að reynsluaka Jaguar XF á dögunum við það sem verða að teljast kjöraðstæður í íslensku haustveðri.
Ford Ranger Raptor var nýlega kynntur til leiks sem einn mest spennandi kosturinn á pallbílamarkaði í Evrópu og víðar enda valinn pallbíll ársins
Nú hefur ný kynslóð hins knáa Hyundai i10 litið dagsins ljós – og hann er kominn til Íslands og tilbúinn í sumarævintýrin. Einhvernveginn er...