Hummer frá Kia
- Skyndilega berast fréttir af því að Kia sé að þróa 2,5 og 5 tonna vörubíla til hernaðarnota. Á sama tíma eru þeir augljóslega að þróa eitthvað utanvegaökutæki sem minnir á Humvee – herjeppann sem var byrjunina á Hummer
Jon Winding-Sørensen skrifa á vefnum sínum ww.bilnorge.no að það virðist sem herinn í Suður-Kóreu sé í miðju ferli að staðla verkfærin sem þeir nota. Einnig bílana sína.
Þess vegna er Kia tilbúið að skila frumgerðum bíla til prófunar á næsta ári. Og þeir sem uppfylla kröfur yfirvalda verða í framleiðslu frá 2024.
Nú eru það ekki stórir herbílar sem vekja mest áhuga okkar hérna þrátt fyrir nýþróaðan 7 lítra dísil V8, sjálfskiptan, ABS og spólvörn, bílastæðaaðstoð, 360 gráðu yfirsýn, gervihnattaleiðsögn og nokkur mjög sérstök sæti.
Svolítið meira spennandi er þó ökutækið sem getur orðið eitthvað alþjóðlegt. Örugglega ekki ósvipað herbílnum frá GM og BDX10 frá Toyota sem kallaður var MegaCruiser í almennu útgáfunni
Engin furða að slík ökutæki séu svipuð. Þau eru smíðuð til að vinna ákveðið verk og skilgreininga á þ ví er yfirleitt nokkuð sú sama.
Nú er Kia ekki að segja að við eigum að halda niðri í okkur andanum meðan við bíðum eftir fullkomnustu, borgaralegu torfærubifreið heims. En þeir segjast nota þessar hernaðarupplifanir til að byggja upp það sem þeir kalla PBV (Purpose Built Vehicle).
Þetta er svipað þegar verið er að þróa og smíða smábíla í mjög sérstökum tilgangi. Á sama hátt og þeir vinna nú með herbíla.
Hér segja þeir einnig að þróunarvinnan í kringum þennan bíl verði ekki aðeins notuð í hernaðarlegum tilgangi, heldur einnig notuð í iðnaðar- eða tómstundaskyni. Byggt á Kia Mohawe mun Kia geta notað reynslu úr herbílunum til að bæta eiginleika borgaralegra jeppa.
(byggt á frétt á BilNorge)
Aðrar umfjallanir
Skoda stefnir að því að komast upp fyrir Ford og Toyota og verða meðal fimm efstu söluhæstu vörumerkja Evrópu á bílamarkaði...
Eigendur Ford F-150 Lightning rafbílsins nota kosti bílsins meira sem „pallbíl“ en ökumenn útgáfunnar með hefðbundinni brunavél...
Aðfararnótt þriðjudagsins 23. ágúst sást helst til óvenjulegt farartæki á neðanjarðarlestarstöð í Madrid. Farartækið sjálft er ekki óvenjulegt í umferðinni ofanjarðar en á neðanjarðarlestarstöðinni við Plaza Eliptica átti það ekki heima.
Bílbelti og snjóbelti eru að sjálfsögðu tvennt ólíkt. Hér verður fjallað um hið síðarnefnda og eiginlega minnst skrifað heldur fá myndirnar að njóta sín. Er ekki sagt að myndir segi meira en þúsund orð? Jæja, það er nú kannski ekki tími fyrir mörg orð á aðfangadegi jóla en látum vaða. Á beltum!