Skoda stefnir á topp 5 í Evrópu
- Skoda stefnir að því að komast fram úr Ford og Toyota og verða eitt af topp 5 vörumerkjum í Evrópu
- Við ætlum að ná markmiðinu með því að koma sterkir inn í grunnflokki, segir forstjóri Skoda
Skoda stefnir að því að komast upp fyrir Ford og Toyota og verða meðal fimm efstu söluhæstu vörumerkja Evrópu á bílamarkaði árið 2030, sagði Thomas Schaefer forstjóri.
Skoda vonar að grunngerðir bíla eins og Fabia muni hjálpa til við að auka söluna. Mynd SKODA
Skoda er núna í 8. Sæti í Evrópu miðað við sölu byggt á gögnum frá 2020 frá iðnaðarsamtökunum ACEA sem telja skráningar í Evrópusambandinu, EFTA og Bretlandi.
Verða að komast upp fyrir Ford og Toyota
Skoda yrði að fara fram úr Ford og Toyota til að komast í fimm efstu sætin. Volkswagen vörumerkið var söluhæst í fyrra og síðan Renault, Peugeot, Mercedes-Benz og BMW.
Sala Skoda hefur aukist með nýrri kynslóð Octavia, sem er söluhæsti bíll fyrirtækisins, sem kom í sölu árið 2020.
Skoda er einnig að hefja sölu á Enyaq-rafknúna sportjeppanum, sem er fyrsta gerð Skoda byggð á MEB-palli VW.
„Hlutabréf okkar eru í sögulegu lágmarki. Það er ekkert sem við getum gert. Við verðum að vona að það róist á seinni hluta ársins“, sagði hann.
Skoda, stærsti útflytjandi Tékklands, afhenti 1.05 milljónir bíla á heimsvísu árið 2020, sem er 19 prósent minnkun milli ára í kjölfar faraldurs kórónaveirunnar, en yfir einnar milljóna markinu sjöunda árið í röð.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Vog á pallinum og „snjallkrókur“ eru frábærar græjur fyrir þá sem draga stöku sinnum og setja farm á pall bílsins
BERLÍN – framleiðsla Volkswagen í Kína, efld með nýrri verksmiðju í Anhui héraði, mun geta smíðað 1 milljón rafbíla á ári í Kína frá og með 2023, sagði...
Í fyrsta skipti í sögu sinni kynnti Mercedes-Benz bíl í dag þar sem eingöngu var um stafræna heimsfrumsýningu að ræða: nýjan...
SHANGHAI - Kínverski rafbílaframleiðandinn Nio kynnti á laugardag sinn fyrsta fólksbíl og horfir til aukinnar hlutdeildar í stærsta bílamarkaði heims...