Hyundai Nexo er Nýorkubíll ársins að mati GQ
Tímaritið GQ í Bretlandi veitti í vikunni Hyundai Nexo verðlaunatitilinn Nýorkubíll ársins 2021 (Alternative Energy Car of the Year) á árlegu verðlaunahátíð sinni í London. Í umsögn dómnefndar er Hyundai hrósað fyrir sína djörfu einstöku þróunarleið sem farin var við hönnun aflgjafa Nexo og sem fáir aðrir framleiðendur hafi fetað við þróun nýrra orkugjafa fyrir samgöngur.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612770303_2089386443111470110_33707549000.jpg)
Frumkvöðulsstarf Hyundai
Nexo er rúmgóður fimm manna vetnisknúinn rafbíll sem búinn er efnarafal sem umbreytir vetni af eldsneytistanki bílsins yfir í rafmagn sem bæði er veitt beint inn á rafmótor bílsins og inn á rafhlöðu hans, þaðan sem rafmótorinn fær einnig nauðsynlega orku til stjórnbúnaðar og aksturs. Í umsögn sinni segir dómnefndin Hyundai hafa sýnt fram á að vetni geti mögulega verið „skilvirkari og hagnýtari aflgjafi í bifreiðum“ en aðrir sem meira eru nýttir í dag.
Þægileg og hrein tækni
Rafmótor Nexo er 120 kW og 163 hestöfl. Rafmótorinn togar allt að 395 Nm og skilar allt að 179 km/klst. hámarkshraða. Hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst. er 9,2 sekúndur og 7,4 sek. frá 80 km hraða í 100 og er enn enginn vetnisknúinn rafbíll á markaðnum sem skákar afköstum hans í þessum flokki. Eldsneytisrými Nexo fyrir vetni er 156,6 lítrar (6,3 kg) og dregur bíllinn allt að 666 km á tankinum samkvæmt WLTP.
Einungis tekur 3-4 mínútur að fylla vetnistankinn og aldrei þarf að stinga bílnum í samband við rafmagn til að hlaða rafhlöðuna. Nexo þolir kaldstart í allt að -30°C og hentar bíllinn því mjög vel á Íslandi.
Hátæknivæddur
Nexo er sérlega vel búinn öllum helsta þæginda- og öryggisbúnaði Hyundai, þar á meðal margvíslegri ökuaðstoð og er raunar hægt að láta Nexo aka algerlega sjálfur án nokkurrar aðkomu ökumanns eins og Hyundai sýndi fram á skömmu fyrir Vetrarólympíuleikana í PyeongChang 2018 þegar ekin var um 300 km vegalengd á þjóðvegum, hliðarvegum, um hringtorg, jarðgöng og fleira.
Sjálfstýring bíla í umferðinni er þó enn hvergi leyfileg af lagatæknilegum ástæðum og er alsjálfvirk tækni bílsins því læst sem stendur.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612770304_8179493853802778308_34340346000.jpg)
Langt á undan sinni samtíð
Nexo, sem kom á markað 2018, er önnur kynslóð Hyundai á vetnisknúnum rafbíl fyrir almennan markað, en bíllinn tók við af sportjepplingnum iX35 sem kom á markað í Evrópu og Asíu árið 2013.
Nexo er fáanlegur í átján löndum víða um heim, þar af þrettán Evrópulöndum að Íslandi meðtöldu eins og hægt er að kynna sér nánar á heimasíðu Hyundai á Íslandi.
Reynsluakstursbíll til taks
Hjá Hyundai í Garðabæ er Nexo til taks fyrir áhugasama sem hafa áhuga á að prófa bílinn og fræðast nánar um tækni hans og þá innviðauppbyggingu sem þegar hefur átt sér stað á suðvesturhorni landsins á vegum Skeljungs.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612770302_6441702298346644849_32296642000.jpg)
Tímaritið GQ
Alþjóðatímaritið GQ var upphaflega stofnað í New York 1931 og fjallaði tímaritið í byrjun aðallega um karlatísku enda hét það í byrjun Gentlemen's Quarterly. Tímaritið, sem kemur út mánaðarlega á viðkomandi tungumáli í 21 landi, hefur í dag mjög víða skírskotun og fjallar nú einnig um bíla, mat, líkamsrækt, ferðalög, íþróttir, tækni og fjölmargt fleira og veitir blaðið árlega verðlaun í hverjum málaflokki.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1651070415_1821750419286273086_4696320207242073.jpg)
Volkswagen hefur kynnt næstu kynslóð Amarok pallbílsins lítillega á undan fullri birtingu hans síðar árið 2022...
![](https://img.bilaskra.is/images/1622011205_5823813066355668334_4751469091064471.jpg)
Sunnudagseftirmiðdag nokkurn brugðum við mæðgin okkur í bíltúr. Þetta var haustið 2013 og var ætlunin að heilsa upp á fuglana í fjörunni við Eyrarbakka.
![](https://img.bilaskra.is/images/1654209622_8325769071090528623_7835526621132825.jpg)
Polestar breikkar nú vöruframboð sitt af tjúnuðum Polestar Engineered bílum með kynningu á Polestar 2 BST edition 270...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612443652_4831165154373820509_5074865966000.jpg)
Automotive News Europe færir áhugamönnum um sportbíla þær fréttir að núna verði Chevrolet Corvette fáanleg með fellanlegum harðtoppi, með nýrri gerð - C8 Corvette