Uppfærður Toyota Camry kemur vorið 2021

Toyota Camry  uppfærður með nokkrum útlits- og tæknibótum - þar á meðal er nýr níu tommu snertiskjár

image

Toyota hefur gefið Camry-fólksbílnum minniháttar útlits- og búnaðaruppfærslu fyrir árgerð 2021 þegar bíllin kemur í sölu snemma á næsta ári.

image

Útlitsbreytingar á uppfærða Toyota Camry eru  takmarkaðar við nýjan stuðara að framan með nokkrum auka loftopum, endurmótað grill og nýrri hönnun á álfelgum í 17 eða 18 tommu stærð.

Nýr 9 tommu skjár

Stærsta breytingin á innréttingum Camry er hins vegar nýr níu tommu skjár fyrir  upplýsingakerfi, festur ofan á mælaborðið. Hann kemur í staðinn fyrir sjö tommu skjá gamla bílsins og bætir við stuðningi við Apple CarPlay og Android Auto - nokkuð sem þann gamla vantaði.

Kaupendur fá einnig aukinn öryggisbúnað, svo sem akreinahjálp, neyðarstýringaraðstoð og greindarstýrðan aðlagaðan hraðastilli, sem þekkir breytingar á hraðatakmörkun og aðlagar sjálfkrafa hraða bílsins við aðra umferð.

image

Toyota Camry: vél og drifbúnaður

Toyota Camry er aðeins fáanlegur með hefðbundinni tvinnaflrás. Kerfið samanstendur af 2,5 lítra fjögurra strokka bensínvél, rafmótor og rafgeymapakka.

Samanlagt afl sem er 215 hestöfl og 221 Nm tog dugar í hröðun frá 0–100 km/klst á tímanum 8,3 sekúndur og hámarkshraða 178 km/klst. Það sem er meira um vert, blendingsaflrás Camry skilar WLTP eldsneytiseyðslutölum á bilinu 5,6-5,3 litra á 100 km, en framleiðir aðeins milli 120 og 127 g / km af CO2.

image

Toyota Camry: tækni og búnaður

Samkvæmt frétt á AutoExpress er endanlega breska forskriftin fyrir endurskoðaðan Camry ekki ennþá staðfest en Toyota hefur sagt að ólíklegt sé að þær breytist mikið miðað við núverandi gerð. Þannig að bíllinn mun enn koma í grunngerð sem staðalbúnaður með 17 tommu álfelgum, hituðum og rafstillanlegum framsætum, skynjurum að framan og aftan til að aðstoða við að leggja í stæði, LED framljósum og tvískiptri stillingu á miðstöð.

(frétt á Auto Express – myndir Toyota)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is